Snerpa Power hefur verið valið til þess að vera stofnaðili að norska rannsóknarsetrinu SecurEL sem á að stuðla að kolefnishlutleysi í Noregi.
Hagnaður Novo Nordisk var mun meiri á fyrsta fjórðungi en spár gerðu ráð fyrir. Um 25 þúsund nýir Ozempic-sjúklingar bætast við í hverri viku í Bandaríkjunum.
Bláfugl tilkynnir formlega um að fraktstarfsemi félagsins hafi verið hætt í lok aprílmánaðar.
Bakslag í baráttunni við verðbólguna vestanhafs breytir sýn seðlabankastjóra á framhaldið.
„Niðurstaða stjórnsýslunnar er þess eðlis að réttlætiskenndin ein dugar til að fara þessa leið,“ segir forstjóri Ölgerðarinnar.
Löggjafinn vestanhafs sér umsvif fagfjárfesta á íbúðamarkaði sem vandamál.
Hætt hefur verið við 4,7 milljarða króna kaup Kaldalóns á fasteignina að Fornubúðum 5, sem hýsir m.a. starfsemi Hafrannsóknarstofnunar.
Raungengi krónunnar er sögulega hátt um þessar mundir.
Helmingur veltunnar á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag var með hlutabréf líftæknifyrirtækjanna Oculis og Alvotech.
Stjórn Þórkötlu hefur samþykkt kaup á 510 fasteignum í Grindavík.
Hermann Sæmundsson hefur verið skipaður í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Arnór Sighvatsson hefur verið skipaður tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika.
Tekjur Huppuíss jukust um 24% á milli ára og námu yfir 900 milljónum króna í fyrra.
Jónas Þór Guðmundsson hefur látið af störfum sem stjórnarformaður Landsvirkjunar. Jón Björn Hákonarson tekur við stjórnarformennskunni.
Ákveðið var að hækka arðgreiðslu Landsvirkjunar vegna síðasta rekstrarárs úr 20 milljörðum í 30 milljarða eftir umleitan fjármálaráðherra.
Aðalfundur KEA fór fram í gær en þar var greint frá því að hagnaður félagsins hafi verið 787 milljónir árið 2023.
Skýrsla starfshópsins hefur að geyma um 50 tillögur sem m.a. snúa að sólarorku, sjávarorku og smávirkjunum fyrir vatnsafl.
Hlutabréfaverð Icelandair fer undir 1 krónu í fyrsta sinn frá því í nóvember 2020.