Í dag var undirrituð viljayfirlýsing flutningafyrirtækisins Cargow Thorship og sveitarfélagsins Ölfuss, með samþykki Hafnarstjórnar Þorlákshafnar, um frekari uppbyggingu á hafnarsvæðinu og áætlunarsiglingar Cargow Thorship til Þorlákshafnar.

Með samkomulaginu skuldbindur sveitarfélagið sig til þess að skapa við höfnina fyrsta flokks aðstöðu fyrir afgreiðslu vöruflutningaskipa og gámaþjónustu.

Cargow Thorship skuldbindur sig þá til að nota aðstöðuna sem meginhöfn á Íslandi á nýjum siglingarleiðum sínum á milli Íslands og meginlands Evrópu. Ný og aukin siglingaáætlun verður síðan kynnt á komandi mánuðum.

„Þetta samkomulag er næsta rökrétta skrefið í uppbyggingu hafnarþjónustu í Þorlákshöfn og með þessu erum við að tryggja enn betur hlutverk hafnarinnar sem lykilþáttar í blómlegu atvinnulífi hér á Suðurlandi. Aukin starfsemi hafnarinnar hefur ætíð verið beintengd við vöxt og velferð samfélagsins hér í Þorlákshöfn og því er frábært að fá þetta trausta fyrirtæki Cargow Thorship til þess að hefja áætlunarsiglingar af þessari stærðargráðu hingað,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss.

Cargow Thorship hefur sinnt áætlunarsiglingum og flutningamiðlun í rúmlega sautján ár og segir í tilkynningu að félagið hafi vaxið hratt í gegnum árin.

„Við höfum sett stefnuna á verulega stækkun starfseminnar og undirstrikum þann ásetning með því að gera Þorlákshöfn að okkar meginhöfn í gámaflutningum á Íslandi. Siglingaleiðin þangað er styttri en inn til Reykjavíkur og samgöngur til og frá höfninni eru góðar. Samkomulagið er stórt skref í uppbyggingu og þróun félagsins og væntum við góðs ávinnings af því fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Stefán Héðinn Stefánsson, forstjóri Cargow Thorship.