Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti í byrjun vikunnar áform sem fela í sér að börn bandarískra ríkisborgara sem fæðast frá 1. janúar 2025 til 1. janúar 2029 fái eitt þúsund dali inn á sérstakan fjárfestingareikning, svokallaðan Trump reikning. Þegar einstaklingar hafa náð 18 ára aldri verður hægt að nota fjármunina til menntunar, íbúðakaupa eða til greiðslu kostnaðar vegna stofnunar fyrirtækis.

Forstjórar bandarískra fyrirtækja, m.a. Uber, Dell og Goldman Sachs, funduðu með forsetanum á mánudag samkvæmt frétt NBC en áætlað er að fyrirtækin leggi milljarða dala til hinna svokölluðu Trump reikninga fyrir börn starfsmanna.

Áformin eru hluti af innanríkisstefnu Trumps en frumvarp þess efnis, sem Trump kallaði „The One Big Beautiful Bill“, var samþykkt af fulltrúadeild þingsins í síðasta mánuði. Frumvarpið bíður nú samþykkis öldungadeildarinnar.