Wisefish ehf., hugbúnaðarhús í viðskiptalausnum fyrir sjávarútveg á heimsvísu, hefur ráðið þrjá nýja stjórnendur í lykilstöður í félaginu.

Fjárfestingarfélagið Adira, sem er aðaleigandi félagsins, hefur samhliða skuldbundið sig til að setja inn nýtt fjármagn til að styðja við enn frekari vöxt.

Yngvi Halldórsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Wisefish. Hann kynntist Wisefish félaginu fyrst sem stjórnarmaður en tók síðar við sem tímabundinn forstjóri í apríl 2024. Yngvi starfaði áður hjá Sýn frá árinu 2019 til 2023, síðast sem forstjóri. Yngvi starfaði einnig hjá Össur í ýmsum stjórnunarstöðum í 10 ár.

Stacey Katz hefur tekið við stöðu fjármálastjóra Wisefish. Stacey hefur starfað síðastliðin 10 ár hjá Marel í ýmsum stjórnunarstöðum, nú síðast sem fjármálastjóri. Stacey er löggiltur endurskoðandi frá New York.

Siggeir Örn Steinþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála. Siggeir hefur varið síðustu 12 árum sem leiðtogi í vöruþróun og leitt umbreytingar í ýmsum starfsgreinum og löndum fyrir Novo Nordisk, Arion Banka, Marel og nú síðast Sýn sem forstöðumaður vörustýringar og upplifun viðskiptavina.

Hugbúnaðarlausnir Wisefish hafa verið í stöðugri þróun í yfir tvo áratugi og eru nýttar í mörgum af stærstu sjávarútvegsfélögum Íslands sem og í fjölda annara landa út um allan heim, að því er segir í tilkynningu.

Wisefish lausnin er sögð heildstæð viðskiptalausn fyrir flóknar virðiskeðjur í sjávarútvegi með fullum rekjanleika sem gerir fyrirtækjum kleift að auka framleiðni, hagkvæmni og sjálfbærni.

„Fyrir hönd Adira þá erum við mjög ánægð að fá reynslumikla stjórnendur í þeim Yngva, Stacey og Siggeir til liðs við það frábæra starfsfólk og stjórnendur sem nú þegar eru hjá Wisefish. Lausnir félagsins hafa fylgt íslenskum sjávarútvegi í tugi ára og hefur mikið af starfsfólki félagsins unnið að lausnunum frá upphafi og er því hafsjór af þekkingu í bæði sjávarútvegi og hugbúnaði í félaginu,” segir Valgarð Már Valgarðsson, stjórnarformaður Wisefish.

„Félagið hefur á undanförnum árum fjárfest í að þróa lausnir félagsins þannig að hægt sé að selja þær sem hugbúnað sem þjónustu (SaaS). Wisefish kerfið er lykilstoð í rekstri viðskiptavina okkar og samhliða því hafa kröfur um áreiðanlegan rekjanleika í matvælaframleiðslu aukist sem hefur gert það að verkum að markaðsþörfin fyrir Wisefish er mikil. Með aukinni áherslu, sterkari markaðsnálgun á erlenda markaði og umbætum í rekstri, höfum við miklar væntingar til félagsins á komandi árum.”