1xINTERNET hefur bæst í hóp bakhjarla Handknattleikssambands Íslands árið 2024 og mun fyrirtækið frá og með EM í Þýskalandi hafa auglýsingu sína á treyjum karla og kvenna landsliða Íslands í handbolta.

Fyrirtækið sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum fyrir önnur fyrirtæki og hefur sterka tengingu við bæði Ísland og Þýskaland. 1xINTERNET er með skrifstofur í báðum löndum og vinnur jöfnum höndum fyrir íslenska og þýska viðskiptavini.

„Okkur fannst spennandi að taka þátt í að styðja við landsliðið á þennan hátt, við höfum ekki verið í mikilli markaðsvinnu á Íslandi þrátt fyrir að vinna fyrir mörg frábær íslensk fyrirtæki. 1xINTERNET er með skrifstofur á Íslandi, Þýskalandi og Spáni þar sem handbolti er fyrirferðamikil íþrótt, og svo spilar náttúrulega inn í mikill áhugi á handbolta innan veggja 1xINTERNET,“ segir Baddý Sonja Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi 1xINTERNET.

Í tilefni af EM hefur fyrirtækið einnig sett upp vefsíðu þar sem finna má létt viðtöl við leikmenn liðsins, ásamt svæði þar sem hægt er að senda strákunum baráttukveðjur.