Hafrannsóknastofnunar sendi frá sér tilkynningu um tvöleytið í dag þar sem upplýst er um að ljóst sé af bráðabrigðaniðurstöðum frekari loðnumælinga að þær muni leiða til óbreyttrar ráðgjafar um engar loðnuveiðar veturinn 2024/2025.
Uppsjávarveiðiskipin Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson hafa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun verið við loðnumælingar suðaustan- og austan við land frá mánudegi til föstudags þessarar viku.
Hafrannsóknastofnun segir markmiðið hafa verið að fá endurtekna mælingu á magn loðnu í megingöngunni á þeim slóðum til samanburðar við niðurstöður mælinga í vikunni á undan.
Bæði skipin fóru yfir allt svæðið eftir mismunandi leiðarlínum og því sé um að ræða tvær óháðar mælingar á magninu þar.
„Bráðabirgða niðurstöður sýna ívið lægra mat á stærð veiðistofnsins en í mælingunni í vikunni á undan á sömu slóðum. Það er því ljóst að niðurstöðurnar munu leiða til óbreyttrar ráðgjafar um engar veiðar.”
Hafrannsóknastofnun ráðgerir að Árni Friðriksson fari til loðnuleitar norður að landinu öðru hvoru megin við næstu helgi.