Odin Cargo ehf., nýtt félag sem sérhæfir sig í flugfrakti, hagnaðist um 60 milljónir króna eftir skatta í fyrra. Stjórn félagsins leggur til að allt að 50 milljónir króna verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2025, að því er segir í ársreikningi félagsins.

Tekjur Odin Cargo námu 748 milljónum króna í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) var um 82 milljónir króna. Eignir félagsins námu 172 milljónum króna í árslok 2024 og eigið fé var um 67 milljónir.

Fylltu í skarð Bláfugls

Tilkynnt var um stofnun Odin Cargo í byrjun maí 2024. Félagið sagðist hafa tekist að fylla hratt í það skarð sem myndaðist með brotthvarfi Bláfugls af íslenska markaðnum með flugfrakt.

Odin Cargo býður upp á sömu flugáætlun og Bláfugl gerði áður, þ.e. fraktflug alla virka daga milli Keflavíkur, Billund og Kölnar. Félagið er umboðsaðili fyrir Delta Cargo og býður upp á dagleg flug frá Keflavík til New York, Minneapolis og Detroit.

Odin Cargo undirritaði samstarfssamning um fraktflutninga við Play í byrjun þessa árs. Með samningnum kom Odin Cargo inn sem sölu- og þjónustuaðili á frakt flugfélagsins.

Framkvæmdarstjóri Odin Cargo ehf. er Magnús H. Magnússon sem hefur starfað við flugtengdan rekstur samfleytt frá 1997. Þegar tilkynnt var stofnun félagsins var það í jafnri eigu hans og Torcargo sem býður upp á alhliða lausnir í flutningum, á sjó, landi og í flugi.

Torcargo, sem hét áður Cargow Thorship, jók eignarhlut sinn í Odin Cargo ehf. úr 50% í 75%, í fyrra.