Hátt í tvöföld umframeftirspurn var í fyrstu skuldabréfaútgáfu Kviku banka í evrum sem lauk fyrir helgi. Bankinn sótti 200 milljónir evra til fjögurra ára, jafnvirði tæplega 30 milljarða íslenskra króna.
Evruútgáfan var í umsjón BofA Securities, J.P. Morgan og Morgan Stanley. Kvika hélt yfir 50 fjárfestafundi í aðdraganda útboðsins.
Að lokum nam heildareftirspurnin yfir 350 milljónum evra og fylltist pantanabókin á innan við hálftíma. Bréfin bera 4,5% fasta vexti og voru seld með vaxtaálagi sem jafngildir 250 punktum ofan á millibankavexti í evrum.
Vegna öflugrar þátttöku fjárfesta var vaxtaálagið lækkað úr 270 í 250 punkta áður en lokað var fyrir bókun. Samkvæmt JP Morgan voru 80% skuldabréfanna keypt af fjárfestum frá Bretlandi, þar af 73% af vogunarsjóðum.
Spurður um þennan gríðarlega áhuga á útgáfu bankans segir Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri Kviku, hana mjög jákvæða.
„Við erum að kynna bankann á þessum markaði í fyrsta sinn. Því fylgir ákveðið umstang þar sem þeir þurfa að kynna sér útgáfu hinna íslensku bankanna og hvað sé eðlilegur munur á okkur og þeim o.s.frv.,“ segir Eiríkur.
„Við vorum með fundi með fjárfestum á mánudaginn, þriðjudaginn og miðvikudaginn í gegnum fjarfundabúnað. Við fengum síðan endurgjöf frá þeim fundum á miðvikudaginn og fimmtudaginn og að lokum var ákveðið að fara af stað með þetta á föstudaginn.
Þannig að við vorum búnir að vera í miklum samskiptum við fjárfesta og fengum góða endurgjöf hjá þeim. Af þeim sökum vorum við með ákveðna vissu um að þetta myndi ganga upp á þessum kjörum.“
Þó að vaxtaálag Kviku hafi verið um 100 punktum hærra en hjá Arion banka og Íslandsbanka, sem fengu um 140 punkta álag í sambærilegum evruútgáfum fyrr á árinu, telja greinendur það eðlilegt enda um frumútgáfu í evrum að ræða samhliða því að efnahagsreikningur Kviku er minni í sniðum.
„Umboðsaðilar útboðsins voru búnir að vera í samskiptum við fjárfesta um hvaða kjör menn væru tilbúnir að kaupa á. Á endanum snerist þetta því bara um að velja rétta daginn því þú vilt hafa vindinn í bakið,“ segir Eiríkur. Spurður um kjör bankans í útboðinu segir Eiríkur það afar jákvætt að álagið lækkaði í gegnum ferlið. „Að ná að lækka kjörin um 20 punkta frá því við byrjuðum og 1,8x eftirspurn í 200 milljóna evra útgáfu er bara fínt. Þetta voru einnig aðallega fjárfestar sem við höfðum verið í samskiptum við sem tóku þátt, sem er jákvætt.“
Þriðja ótryggða útgáfa ársins
Skuldabréfaútgáfa Kviku er þriðja ótryggða skuldabréfaútgáfa (e. senior preferred) íslensks banka í evrum á árinu 2025.
Bæði Arion banki og Íslandsbanki kláruðu sambærilegar útgáfur fyrr á árinu fyrir 300 milljónir evra hvor um sig í febrúar og mars, með um 5 ára lánstíma. Íslandsbanki gaf út á 3,875% föstum vöxtum, sem jafngilti á þeim tíma um 140 punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum (EURIBOR).
Arion banki lauk í febrúar 2025 útgáfu á ótryggðum skuldabréfum (e. senior preferred) að fjárhæð 300 milljónir evra með fimm ára lánstíma.
Skuldabréfin bera 3,625% fasta vexti, sem jafngildir 130 punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum. Útgáfa Arion banka vakti mikla athygli fjárfesta og var fjórföld umframeftirspurn eftir bréfunum, með heildarpantanir upp á 1,3 milljarða evra frá yfir 140 fjárfestum.