OK hefur undirritað kaupsamning um kaup á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Félögin sérhæfa sig bæði í þjónustu í upplýsingatækni og búnaðarsölu. Með kaupunum fjölgar OK starfsstöðvum sínum.

Þjónusta TRS við rafmagns- og fjarskiptakerfi er ekki hluti af kaupunum og verður sá hluti starfræktur í nýju félagi, TRS raf ehf.

„Við viljum bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og nálægð okkar við viðskiptavini skiptir þar máli. TRS hefur haldið uppi öflugri þjónustu, einkum á Suðurlandi þar sem uppbygging hefur verið mikil síðustu misserin og þykir okkur spennandi að taka þátt í þeirri vegferð,“ segir Gunnar Zoëga forstjóri OK.

„TRS hefur sinnt þjónustu við upplýsingakerfi í tæpa þrjá áratugi með góðum árangri. Við sjáum mikil tækifæri fyrir okkar starfsfólk og viðskiptavini með sölu TRS til OK og höfum fulla trú á að þeim muni farnast vel,“ segir Gunnar Bragi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri TRS.