Samtökin 78 hafa veitt Ölgerðinni vottun sem hinseginvænn vinnustaður og er Ölgerðin fyrst íslenskra fyrirtækja til að hljóta slíka vottun, að því er kemur fram í tilkynningu.

Ölgerðin og Samtökin 78 skrifuðu undir viljayfirlýsingu í maí sl. um að hefja vinnu að slíkri vottun og í kjölfarið var fræðsla til starfsfólks aukin til muna, kannanir framkvæmdar og úttektir gerðar með hinseginleika í huga. Því ferli er nú formlega lokið með vottun af hálfu samtakanna.

Í tilkynningu segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar að ferlið hafi fært fyrirtækjamenningunni spegil sem hollt hafi verið að skoða sig í og vegferðin hafi leitt til fjölda smárra en oft lúmskra breytinga sem styrki fjölbreytileika í jafnréttisvegferð fyrirtækisins. Þá skili slík vinna líka sýnilegum breytingum út á við.

„Dæmi um það er breytt slagorð Kristals sem þjóðin hefur þekkt sem „Það sést hverjir drekka Kristal.“ Kristall er hins vegar fyrir okkur öll og uppfært slagorð er því „Það sést hver drekka Kristal“ og þannig er gert ráð fyrir öllum kynjum. Þetta er aðeins upphafið að mun lengri og betri vegferð okkar allra,“ segir Andri Þór.

„Með því að skapa fordómalausan og vel upplýstan vinnustað sköpum við ekki einungis betra samfélag, heldur festum við í sessi að Ölgerðin er vinnustaður þar sem fjölbreytileika er fagnað og vellíðan starfsfólks er lykilatriði.“

„Samtökin 78 fögnuðu því mjög að fá að vinna náið með Ölgerðinni að meiri fjölbreytileika og betra samfélagi. Þetta hefur verið spennandi og fróðleg vegferð og við erum afar ánægð með að veita fyrstu vottunina að hinseginvænum vinnustað til Ölgerðarinnar,“ er haft eftir Daníel E. Arnarssyni, framkvæmdastjóra Samtakanna 78.

Frá afhendingu vottunar Samtakanna 78 um hinseginvænan vinnustað.
© Aðsend mynd (AÐSEND)