Ölgerðin hefur undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupa á 100% hlut í Gæðabakstri ehf. Heildarvirði viðskiptanna er 3.454 milljónir króna og að frádregnum vaxtaberandi skuldum er áætlað kaupverð félagsins á afhendingardegi um 2.700 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu Ölgerðarinnar til Kauphallarinnar.
Gæðabakstur er í 20% eigu Vilhjálms Þorlákssonar, framkvæmdastjóra félagsins, og 80% í eigu Dragsbæk A/S í gegnum dótturfélagið Viska ehf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlega skjalagerð og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Ölgerðin hyggst reka Gæðabakstur sem sérstakt félag innan samstæðunnar. Þá verður Vilhjálmur Þorláksson áfram framkvæmdastjóri Gæðabaksturs. Náist rekstrarmarkmið á næstu tveimur árum eftir kaupin kann kaupverð á hluta Vilhjálms að hækka um allt að 100 milljónir króna.
Gæðabakstur velti 3.357 milljónum króna og skilaði 468 milljóna króna EBITDA á síðasta ári, að því er kemur fram í tilkynningunni. Starfsfólk félagsins er um 150. Starfsemi félagsins er í eigin húsnæði að Lynghálsi 7 sem er 5.057 fermetrar að stærð auk 3.000 fermetra byggingaréttar.
„Fyrirtækið hefur vaxið hratt frá stofnun 1993 og er umfangsmikið í sölu til stórmarkaða, hótela og veitingastaða.“
„Við erum afar ánægð með þessi viðskipti, sem eru samkvæmt stefnu Ölgerðarinnar um vöxt félagsins og þau falla vel að kjarnastyrkleika Ölgerðarinnar í vörumerkjauppbyggingu, enda Gæðabakstur með fjölmörg afar vel þekkt vörumerki á innanlandsmarkaði. Þá er ekki síður mikilvægt að hafa tryggt að Vilhjálmur haldi áfram störfum hjá Gæðabakstri,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
„Í þessari viðbót við samstæðu Ölgerðarinnar felast mikil tækifæri, til að mynda í sölu, dreifingu, innkaupum og vöruþróun. Þá munu vörur Gæðabaksturs njóta góðs af öflugri vöruhúsa- og dreifingarmiðstöð Ölgerðarinnar sem rísa mun á Hólmsheiði. Með þessari viðbót verður velta Ölgerðarinnar nálægt 50 milljörðum króna.“
„Það hefur mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að við hófum að framleiða kleinur og kleinuhringi í 69 fm. húsnæði og þessi áfangi er staðfesting á því góða starfi sem hefur verið unnið hjá Gæðabakstri. Við höfum ávallt verið heppin með starfsfólk og auk þess fjárfest skynsamlega í fasteignum og framleiðslutækjum og búum nú vel að miklum mannauði og húsnæði að Lynghálsi með sterkan rekstrargrundvöll. Ég hlakka til að starfa innan samstæðu Ölgerðarinnar og horfi bjartsýnn til framtíðar,“ segir Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs.
Ráðgjafar Ölgerðarinnar í viðskiptunum eru XAX Advisors og LOGOS.