Ölgerðin hefur undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupa á 100% hlut í Kjarnavörum hf. Heildarvirði Kjarnavara í viðskiptunum er 3.970 milljónir króna og verða kaupin fjármögnuð með lántöku, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Kjarnavörur er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki landsins í sósum, sultum, grautum og smjörlíki. Framleiðslan er aðallega fyrir innanlandsmarkað en vörur eru jafnframt fluttar til Færeyja.
Stærstur hluti vara fyrirtækisins er seldur undir eigin vörumerkjum en um 40% veltu kemur fyrir framleiðslu undir vörumerkjum þriðja aðila. Hjá fyrirtækinu starfa 35 starfsmenn. Fjórar fasteignir, samtals um 3.000 fermetrar, í Garðabæ og Hafnarfirði sem eru í eigu Kjarnavara fylgja með í kaupunum.
Samanlögð velta Kjarnavara og dótturfélaga á síðasta ári var um 4 milljarðar króna og EBITDA var 574 milljónir króna.
Hlutur Kjarnavara í dótturfélögum fylgir með í kaupunum, en það er 100% hlutur í Ísbúð Vesturbæjar ehf., 66,67% hlutur í Nonna litla ehf. og 59% hlutur í Innbaki hf.
Verður rekið sem sérstakt félag innan samstæðunnar
Kjarnavörur eru í 32,4% eigu Guðjóns Rúnarssonar framkvæmdastjóra Kjarnavara og 67,6% í eigu Dragsbæk A/S í Danmörku.
Fram kemur að Kjarnavörur verði reknar sem sérstakt félag innan samstæðu Ölgerðarinnar og mun Guðjón áfram starfa sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins eftir kaupin.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlega skjalagerð og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
„Kjarnavörur hafa náð að vaxa og stækka jafnt og þétt frá stofnun fyrirtækisins árið 1989. Einvala starfsfólk, skýr framtíðarsýn og öflugt gæðaeftirlit í framleiðslu hafa komið okkur á þann stað sem við erum í dag. Það er bjart framundan og það er ánægjuefni að ganga til liðs við Ölgerðina og halda uppbyggingunni áfram,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Kjarnavara.
„Ölgerðin sér mikla möguleika í Kjarnavörum, sem hefur styrkt sig í sessi frá stofnun og er nú eitt öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sínu sviði. Vörumerki þess eru sterk og framleiðsla fyrir þriðja aðila árangursrík. Kaupin eru í samræmi við stefnu okkar um kjarnastyrkleika í vörumerkjauppbyggingu og við hlökkum til framtíðar með Kjarnavörur í samstæðu Ölgerðarinnar,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
Ráðgjafar Ölgerðarinnar í viðskiptunum eru XAX Advisors og LOGOS.
Þetta eru þriðju fyrirtækjakaupin sem Ölgerðin tilkynnir um á skömmum tíma. Í síðustu viku tilkynnti félagið um kaup á öllu hlutafé í Ankra ehf., fyrirtæki sem hefur framleitt kollagen fyrir Ölgerðina frá árinu 2019.
Fyrir rúmum mánuði síðan undirritaði Ölgerðin samkomulag um helstu skilmála kaupa á 100% hlut í Gæðabakstri ehf.