Hluta­bréfa­verð Öl­gerðarinnar hefur lækkað um tæp 4% í við­skiptum dagsins og stendur gengi félagsins í 18,3 krónum þegar þetta er skrifað.

Öl­gerðin birti árs­hluta­upp­gjör þriðja árs­fjórðungs eftir lokun markaða í gær þar sem kom fram að hagnaður dróst saman um tæp­lega 22% frá sama tíma­bili í fyrra.

Öl­gerðin hagnaðist um 568 milljónir króna á fjórðungnum sem lauk 30. nóvember síðastliðinn sem er lækkun úr 728 milljónum árið á undan.

Vöru­sala Öl­gerðarinnar jókst um 0,9% milli ára og nam 11,3 milljörðum króna á fjórðungnum. Félagið segir að betri sala til hótela og veitingastaða, fyrir­tækja og ÁTVR hafi stutt við aukna vörusölu á fjórðungnum.

Rekstrar­hagnaður félagsins fyrir af­skriftir (EBITDA) dróst saman um 13,6% milli ára og nam 3,9 milljörðum. Af­komu­spá fyrir fjár­hagsárið 2024 er óbreytt og gerir ráð fyrir EBITDA á bilinu 4,9 – 5,3 milljarðar króna.

„Ölgerðin heldur áfram að renna styrkum stoðum undir rekstur sinn, þó vissulega finnum við fyrir krefjandi ytri aðstæðum, eins og flest fyrirtæki,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.