Verð á hráolíu hækkaði uvið opnun markaða í morgun. Mjög snörp lækkun hefur verið seinnipartinn og hefur verð á WTI olíu lækkað og nemur lækkunin 6,9%.

WTI hráolían kostar nú 68,75 dali en fór hæst í 78,4 dali á tunnuna í dag. Verði stóð í 68 dölum 12 júní, daginn áður en Ísraelar gerðu sína fyrstu árás á Íran.

Þessi óvenju mikla verðbreyting innan dagsins er rakin til þess að Íranir hafa aðeins svarað loftárásum Ísraela og Bandaríkjanna með aumri árás á herstöð Bandaríkjahers í Katar.

Flestar eldflaugar Írana voru skotnar niður áður en þær hæfðu herstöðina og engan sakaði í árásinni.