Atlasolía lækkaði fyrst bensínstöðva í morgun og þar kostar beníslíterinn 232,50 krónur. Í ágústmánuði hefur eldsneytisverð lækkað um tíu krónur. Rekja má lækkunina til lækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu síðustu daga. Þó hefur verð á Brent-Norðursjávarolíu hækkað aftur eftir lækkun í morgun og nemur hækkunin nú 1,28% það sem af er degi og WTI olían hefur hækkað um 1,01%