Hlutabréfaverð Icelandair, Play og Eimskips leiddu hækkanir í kauphöllinni í dag en rekstur félaganna þriggja á það sameiginlegt að vera háð olíuverði.
Þrátt fyrir átök í Miðausturlöndum hefur olía verið á mikilli niðurleið síðustu tvo daga en vopnahlé í gærkvöldi staðfesti þá trú fjárfesta að Íran væri ekki að fara loka Hormússundi.
Vestur-Texas hráolían hefur lækkað um 4,69% í dag og er komin í 65,25 dali. Brent Norðursjávarolía hefur lækkað um 4,73% og stendur í 65,44 dölum.
Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka segirþað undrunarvert að hækkunin á heimsmarkaðsverði á olíu hafi ekki verið meiri þegar átökin voru enn að stigmagnast.
Hlutabréfaverð Icelandair leiddi hækkanir er gengi flugfélagsins fór upp um 4% í 56 milljón króna veltu. Dagslokagengi Icelandair var 1,05 krónur.
Hlutabréfaverð Eimskips hækkaði um rúm 3% í 304 milljón króna veltu og lokaði gengið í 370 krónum á hlut.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í gær er Eimskip orðið hluti af úrvalsvísitölunni OMXI 15.
Hlutabréfaverð Play hækkaði um tæp 3% í örviðskiptum og var daglokagengið 0,92 krónur á hlut.
Gengi Kviku, Sjóvá og Skagans hækkuðu einnig um tæp 2% í viðskiptum dagsins.
Úrvalsvísitalan OMXI 15 hækkaði um 0,67% og lokaði í 2.563,87 stigum.
Heildarvelta á markaði nam 2,7 milljörðum króna.