Markaðsverð á helstu tegundum hráolíu hækkaði í viðskiptum á Asíumarkaði í nótt í kjölfar aukinnar óvissu vegna átaka milli Írans og Ísraels.
Samkvæmt The Wall Street Journal eru fjárfestar að endurmeta áhættustigið á olíumörkuðum, þar sem hætta er talin á framboðstruflunum í kjölfar ógnana um lokun Hormússundar, einnar mikilvægustu olíuflutningaleiðar heims.
Framvirkir eins mánaðar samningar með Brent hráolíu, sem er alþjóðlegt viðmiðunarverð, hækkuðu um 2% og stóð tunnan í 75,73 Bandaríkjadölum í nótt.
Á sama tíma hækkaði Vestur-Texas hráolía (WTI), sem er helsta viðmið í Bandaríkjunum, einnig um 2% og fór í 74,44 dali á tunnu.
„Markaðir meta nú verulega áhættu á framboðsskerðingum vegna aukinna átaka,“ segir í athugasemd frá ANZ Research.
Esmail Kowsari, háttsettur yfirmaður íranska byltingarvarðarins, sagði um helgina að Íranir íhugi að loka Hormússundi, þar sem um þriðjungur af framleiddri hráolíu fer um daglega. Slík lokun myndi fela í sér verulega röskun á alþjóðlegu framboði og þrýsta verðlagi enn hærra.
Samkvæmt greiningu frá Jessicu Amir, markaðsráðgjafa hjá Moomoo Ástralíu, telja margir fjárfestar að olíuverð gæti hækkað í 95 dali á tunnu, fari ástandið versnandi.
Hún bendir á að þetta komi á óheppilegum tíma, þar sem nokkrir helstu seðlabankar heims funda þessa vikuna um vaxtaákvarðanir og efnahagsstefnu.
„Aukinn verðþrýstingur á orkumörkuðum getur haft áhrif á verðbólguhorfur og þar með á vaxtastefnu,“ segir Amir.
Gull heldur áfram að styrkjast
Samhliða hækkun hráolíuverðs hækkaði einnig verð á spot-markaði fyrir gull og fór í 3.444,61 dali fyrir únsu, eða sem nemur 0,3% hækkun í kvöldviðskiptum í Asíu.
Chris Weston, rannsóknarstjóri hjá Pepperstone, telur að verðgildi gulls gæti á næstu dögum náð sögulegu hámarki, 3.500,10 dali á únsu, ef óvissan heldur áfram.
„Gull hefur notið vaxandi eftirspurnar frá fjárfestum sem eru að draga úr áhættu annars staðar í eignasöfnum sínum,“ segir Fawad Razaqzada hjá City Index og FOREX.com. „Við sjáum einnig tilfærslu úr öðrum eðalmálmum yfir í gull.“