Heimar fasteignafélag hafa gengið frá kaupum á á öllu hlutafé Grósku ehf., sem á samnefnda fasteignin að Bjargargötu 1, og Gróðurhússins ehf., sem rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni. Greint er frá þessu í tilkynningu Heima til Kauphallarinnar.

Kaupverðið var greitt með útgáfu og afhendingu 258 milljón nýrra hluta í Heimum sem eru um 9,5 milljarðar króna að markaðsvirði miðað við núverandi gengi hlutabréfa Heima. Hlutirnir hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq og afhentir seljendum Grósku og Gróðurhússins.

Aðaleigendur Grósku eru Björgólfur Thor Björgólfsson, Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson sem unnu saman hjá fjárfestingarfélaginu Novator Partners sem Björgólfur fór fyrir.

Í tilkynningu Heima kemur fram að sem liður í viðskiptunum muni fjárfestingarfélagið Omega ehf., sem er í eigu Andra og Birgis Más, kaupa hlut Björgólfs Thors og verður eftir kaupin stærsti hluthafi Heima með liðlega 12,5% hlut.

Ætla má að Björgólfur Thor hafi fengið um 3 milljarða króna í sinn hlut við söluna.

Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson eru orðnir stærstu hluthafar Heima með 12,5% hlut.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Birgir Már segir að salan á Grósku til Heima sé ánægjuleg og marki tímamót í nærri tíu ára langri sögu uppbyggingar hugmyndaseturs í Vatnsmýrinni. Sú saga hófst þegar þeir, stærstu eigendur CCP í samtarfi við forstjóra félagsins, vildu byggja höfuðstöðvar sem hæfðu starfsemi þess.

Staðsetningin, sem var ákveðin í samstarfi við CCP og borgina, var valin ekki síst vegna tenginga við vísindasamfélagið og háskólann.

„Eftir að hafa unnið víða um heim og fjárfest í nýsköpun um langt skeið vaknaði sú hugmynd snemma að byggja upp þekkingarklasa sem myndi jafnast á við það besta sem þekkist á „campus-um“ tæknifyrirtækja erlendis. Það hefur svo sannarlega tekist. Fyrir okkur sem komum að uppbyggingu hússins fylgir því líka mikil ánægja og stolt hversu mörg fyrirtæki sem náð hafa stórkostlegum árangri hafa stigið sín fyrstu skref í Grósku,“ segir Birgir Már.

„Þetta sýnir að ætlunarverkið tókst, að húsið yrði gróðrarstöð skapandi iðnaðar og verðmætasköpunar á grundvelli hugvits á íslandi. Svona metnaðarfullt hús verðskuldar öflugan eiganda sem hefur burði til að halda þróuninni áfram. Heimar eru öflugasta fasteignafélag landsins með flotta framtíðarsýn og í mínum huga rétti aðilinn til að taka við rekstri Grósku. Framtíðin er björt”

Gróska er um 18.600 fermetrar að stærð ásamt 6.200 fermetra bílakjallara með 205 stæðum, eða samtals um 24.800 fermetrar. Gróðurhúsið rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni.

Meðal leigutaka í Grósku eru leikjaframleiðandinn CCP, bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið NetApp, Vísindagarðar Háskóla Íslands, World Class og Íslandsstofa.

„Gróska er einstök bygging sem státar af öflugu samfélagi nýsköpunar og skapandi greina og sómir sér afar vel í okkar eignasafni. Staðsetningin á Háskólasvæðinu, stærð og hönnun hússins, auk nálægðar við miðborgina, mun að okkar mati styðja við stöðuga eftirspurn leigutaka eftir skrifstofum og öðru atvinnuhúsnæði í Grósku til langrar framtíðar,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima.

„Við höfum á undanförnum misserum selt stakar eignir úr eignasafni Heima í samræmi við stefnu okkar um að eiga og reka sterka kjarna með fjölbreytta þjónustu í grennd við íbúðabyggð og góðar samgöngutengingar. Kaupin á Grósku og Gróðurhúsinu eru mikilvægt skref á þeirri vegferð og styrkja bæði félagið og eignasafn okkar.“

Halldór Benjamín segir Grósku vera einstaka byggingu.
© Aðsend mynd (AÐSEND)