Fyrirtækið dk gerði nýverið samning við Borealis Data Center um rekstur á nýrri aðalstaðsetningu gagnavers fyrirtækisins í Reykjavík. Flutningurinn felur í sér stórtæka uppfærslu á innviðum og rekstrarumhverfi.
Á nýjum rekstrarstað verður innleiddur nýr vél- og netbúnaður og að lokinni uppsetningu í sumar mun hýsingar- og þróunarumhverfi fyrirtækisins færast yfir í nýja gagnaverið.
Í tilkynningu segir að breytingin muni skila mikilli aukningu á net- og vinnsluhraða í innri kerfum en dk hefur frá árinu 2012 verið með sitt aðalgagnaver í Síðumúla. Sú staðsetning mun loka síðar á árinu en varagagnaver dk í Ásbrú verður þó áfram nýtt til öryggisafritunar.
„Það er virkilega spennandi að hefja nýjan kafla í okkar hýsingarrekstri með Borealis. Okkar núverandi þjónustuaðili hefur sinnt okkur gífurlega vel frá árinu 2012 og mun gera það áfram í varagagnaverinu okkar í Ásbrú,“ segir Trausti Sigurbjörnsson, sviðsstjóri hýsingar hjá dk hugbúnaði.
Öll gögn sem dk hýsir eru staðsett innanlands í íslenskum gagnaverum og eru til í fjórriti, tvö eintök á hvorum stað, til að tryggja hámarksöryggi komi til óvænts atburðar.
„Í gagnaveri Borealis á Korputorgi í Reykjavík hýsum við nú þegar fjölbreytta og samfélagslega mikilvæga innviði og fögnum því að fá dk hugbúnað í hóp viðskiptavina okkar þar. Við hlökkum til samstarfsins við dk og að styðja við framþróun í starfsemi þeirra og bætta þjónustu við viðskiptavini,“ segir Halldór Már Sæmundsson, CCO hjá Borealis.