Orkuveita Reykjavíkur (OR) hagnaðist um 4,5 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum, samanborið við 2,9 milljarða á sama tímabili í fyrra. Félagið birti uppgjör fyrir fyrsta fjórðung í dag.
Rekstrargjöld lækka um 7%
Rekstrartekjur samstæðunnar jukust um 7% milli ára og námu 18,8 milljörðum króna.
Rekstrargjöld lækkuðu um 490 milljónir króna milli ára, eða um 7,1% og námu tæplega 6,4 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi. Þar munar mestu um að liðurinn Orkukaup og orkuflutningur lækkaði um 28% milli ára og nam 1,5 milljörðum króna á fjórðungnum.
Í uppgjörstilkynningu OR segir að þrátt fyrir að launakostnaður hafi aukist milli ára þá lækkaði annar rekstrarkostnaður. Á fjórðungnum hafi Orka náttúrunnar auk þess fengið endurgreiddar um 450 milljónir króna vegna leiðréttingar á gjaldskrá Landsnets.
Veltufé frá rekstri nam 9,4 milljörðum króna en var 8,0 milljarðar á sama tímabili 2024. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum jukust um 2,2% og námu 6,4 milljörðum króna. Mestar voru þær hjá Veitum, einkum tengdar eflingu hitaveitna.
„Styrkur Orkuveitunnar til að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar er mikill og vaxandi. Afkoman er góð og það er jákvætt að sjá vaxtagjöldin loksins lækka,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.