Origo hefur undirritað samstarfssamning við KLAK - Icelandic Startups um samvinnu um samfélagshraðalinn Snjallræði og eykur þannig við stuðning sinn við nýsköpun á Íslandi.

Samfélagshraðallinn Snjallræði er ætlað að draga fram og styðja nýja tækni og aðferðir sem styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Umsjón hraðalsins er í höndum KLAK - Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.

Origo hefur verið í eigendahóp KLAK frá upphafi og hefur í fjölda ára lagt áherslu á nýsköpun í allri sinni starfsemi. Origo verður nú einn bakhjarla Snjallræðis.

„Við höfum skilgreint nýsköpun sem eitt af áhersluatriðum í samfélagsstefnu Origo. Við teljum að það sé einmitt með nýsköpun og tækni sem samfélagsvandamál framtíðarinnar verða leyst. Snjallræði er hraðall sem gengur einmitt út á það, að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það hefur lengi hallað á konur í fjárfestingu í nýsköpun. Það sem er jákvætt við Snjallræði er hvað kvenfrumkvöðlum hefur vegnað vel eftir þátttöku í þessum hraðli. Við hlökkum til að styðja við verkefnin í Snjallræði og fögnum aðkomu MIT sem býður upp á metnaðarfullan vettvang til nýsköpunar,“ segir Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo.

„Það er gaman að sjá Origo taka stuðning sinn enn lengra og koma inn sem bakhjarl auk þess að vera einn af okkar eigendum. Origo mun leggja verkefninu fjármagn auk þess sem þau koma inn með verðmæta þekkingu og reynslu sem mun nýtast þátttakendum vel,“ segir Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK.

Opnað var fyrir umsóknir í Snjallræði þann 29. júní og er umsóknarfrestur til 7. ágúst.