Orkan, dótturfélag Skeljar fjárfestingarfélags hefur undirritað kaupsamninga sem fela í sér að félagið eignist 96% hlut í Samkaupum sem rekur sextíu verslanir m.a. undir merkjum Nettó og Krambúðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar í gærkvöldi.

Tilkynnt var fyrir tveimur vikum að Orkan hefði undirritað kaupsamning um kaup á öllum 53,1% hlut Kaupfélags Suðurnesja (KSK) í Samkaupum fyrir 2.878 milljónir króna. Kaupverðið verður greitt með afhendingu á nýju hlutafé í Orkunni.

Viðskiptin voru m.a. háð því að Orkan myndi komast að samkomulagi við aðra hluthafa Samkaupa þannig að samanlagður eignarhlutur Orkunnar og annarra aðila tengdum Skeljar nemi að lágmarki 90% í kjölfar viðskipta.

Skel upplýsti í gærkvöldi um að Orkan hefði undirritað kaupsamninga við aðra hluthafa Samkaupa um kaup á öllum hlutum þeirra í félaginu á sömu kjörum og viðskiptin við KSK fara fram á. Viðskiptin fóru fram á genginu 13 krónur á hvern hlut.

Þá hefur fulltrúaráð KSK samþykkt kaupsamning Orkunnar og KSK. Jafnframt hafi stjórnir Atlögu ehf. (Heimkaupa) og Samkaupa undirritað öll samrunaskjöl vegna samruna félaganna.

„Aðilar vinna í sameiningu að því að ganga frá útistandandi skilyrðum um áskriftarloforð fjárfesta eða sölutryggingu viðskiptabanka félagsins að fjárhæð 2.000 m.kr. og að klára samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins.“

Samningur Orkunnar og KSK gerir ráð fyrir að samstæða félaganna verði mynduð með sambærilegu sniði og skráð smásölufyrirtæki hérlendis.

Stærstu hluthafar Samkaupa í árslok 2024

Hluthafi Hlutur
Kaupfélag Suðurnesja svf. 51,3%
Birta lífeyrissjóður 18,1%
Kaupfélag Borgfirðinga 10,7%
Festa - lífeyrissjóður 10,0%
Eignarhaldsfélagið Bjarmi ehf. 5,0%
Byggðastofnun 2,8%
Græni dropinn ehf. 0,6%
Kaupfélag Árnesinga svf. 0,2%
Magnús Haraldsson 0,2%
Ómar Valdimarsson 0,1%