Orkuveitan, Transition Labs og breska hátæknifyrirtækið Space Solar hafa skrifað undir þríhliða yfirlýsingu um samstarf. Viljayfirlýsingin kemur í kjölfar kynningar á verkefninu á ársfundi Orkuveitunnar í apríl síðastliðnum.

Space Solar, sem hefur átt í samstarfi við íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs, hefur þróað sólarorkuver sem áætlað er að verði á sporbaug um jörðu, að því er segir í tilkynningu.

„Tæknin gengur út á það að orkuverin muni virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með stuttum útvarpsbylgjum. Fyrirhugað er að svokallaðar jarðstöðvar taki síðan við bylgjunum, umbreyti þeim í rafmagn og skili grænni endurnýjanlegri orku inn í orkukerfi heimsins.“

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að aðilar muni vinna saman að ýmsum þáttum sem tengjast fyrsta fasa uppbyggingar Space Solar. Áætlað er að fyrsta tilraunaorkuverið á sporbaug um jörðu skili 30 MW til jarðar. Ólíkt sólarorkuverum á jörðu niðri muni sólarorkuver Space Solar geta framleitt rafmagn dag og nótt, óháð veðurfari eða skýjahulu.

„Við í Orkuveitunni erum stolt af því að aðilar eins og Space Solar skuli leita til okkar. Þetta er gríðarlega spennandi verkefni þar sem enn á eftir að leysa ýmsar flóknar verkfræðilegar áskoranir,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunni.

„Það er mikilvægt að hugsa stórt og styðja við framsækin verkefni. Viljayfirlýsingin felur m.a. í sér kaup á mögulegri orku sem verður til á rannsóknarstigi. Við höfum einnig rætt það að aðstoða fyrirtækið við að tengjast neti Landsnets. Takist þessum aðilum að leysa áskoranirnar gæti það skipt sköpum í orkuöflun framtíðar.“

Horfa til Íslands, Kanada og Japans

Eitt af því sem stendur fyrir dyrum er að velja staðsetningar fyrir fyrstu móttökustöðvar orkunnar á jörðu niðri.

„Við horfum til þess að staðsetja móttökustöðvar á norðurhveli jarðar og er í því sambandi meðal annars litið til Íslands, Kanada og norðurhluta Japan. Komi til uppbyggingar á Íslandi er okkur mikilvægt að eiga í samstarfi við leiðandi íslenskt orkufyrirtæki um áframsölu orkunnar, auk annarra úrlausnarefna sem tengjast uppbyggingunni. Orkuveitan er draumasamstarfsaðili fyrir verkefni af þessu tagi enda hefur fyrirtækið sýnt að það er framsýnt og skorast ekki undan leiðandi hlutverki þegar kemur að loftslagsaðgerðum”, segir Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Transition Labs.

Transition Labs vinnur að undirbúningi þróunarstarfsins auk þess að styðja Space Solar í viðskiptaþróun, stefnumótun og fjármögnun.

Áætlanir Space Solar gera ráð fyrir að í kjölfar þessa fyrsta verkefnis verði ráðist í uppbyggingu stærri orkuvera sem þjónusti aðra markaði heimsins. Sérhvert slíkt sólarorkuver muni skila 1,4 GW til jarðar, en bent er á að það samsvari um helmingi allrar orkuframleiðslu Íslands.

„Það er einstakt að vinna með svona framsýnu fyrirtæki eins og Orkuveitunni. Sólarorka úr geimnum hefur fjölda einstakra kosta s.s. að geta framleitt orku allan sólarhringinn á sjálfbæran og hagkvæman hátt. Orkuveitan hefur skilning á því að þróa þarf nýja endurnýjanlega orkukosti til þess að eiga möguleika á að ná alþjóðlegum markmiðum líkt og kolefnishlutleysi fyrir 2050 og við erum hæstánægð að þau hafa ákveðið að vinna með okkur að sjálfbærari framtíð í orkumálum,” segir Martin Soltau, annar framkvæmdastjóra Space Solar.

Frumgerð að sólarorkuveri Space Solar hefur verið í prófunum hjá Queen’s University Belfast á Írlandi.
© Aðsend mynd (AÐSEND)