Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa í Frakklandi hefur hækkað töluvert síðastliðna daga eftir að Emmanuel Macron Frakklandsforseti ákvað að blása til þingkosninga á sunnudaginn.
Krafan rauk úr 3,03% í 3,38% á mánudaginn og hefur verið í kringum 3,2% síðan þá. Töluverður söluþrýstingur hefur verið á hlutabréfamarkaði og hefur franska úrvalsvísitalan CAC 40 lækkaði um 3,5% í vikunni.
Dagslokagengi úrvalsvísitölunnar á föstudaginn fyrir kosningar var 8.047 stig en hún stendur í 7.776 stigum þegar þetta er skrifað.

Að mati The Wall Street Journaler staðan á skuldabréfamarkaði þó verri þar sem verri lánakjör franska ríkisins gætu haft afar neikvæðar afleiðingar.
Í síðasta mánuði lækkaði matsfyrirtækið Standard&Poors lánshæfismat franska ríkisins vegna stöðugs halla á ríkissjóði og gríðarlegrar skuldaaukningar.
Evrópuráðið mun síðan líklegast slá á fingur ríkisstjórnanna í næstu viku fyrir að hafa ekki fylgt loforðum um að draga úr lántöku.
Frönsk skuldabréf eru að mestu í eigu erlendra fjárfesta og eru þeir líklegri en ella til að losa sig við þau eða kaupa ekki meira þegar það er óreiða í stjórnmálum landsins.
Að mati WSJ er þó stærsta vandamálið að franska ríkinu og frönskum kjósendum virðist nokkuð sama um halla ríkissjóðs og lánakjör ríkisins. Kjósendur virðast á þeim stað að þeir séu sannfærðir um að enginn stjórnmálamaður sé í raun að fara draga úr útgjöldum og rétta hallann af.
Svipar því viðhorfi til kjósenda í Bandaríkjunum en bandaríski fjölmiðillinn minnir þó Frakka á að þeir séu ekki með stærsta skuldabréfamarkað í heimi til að bjarga sér ef illa fer.