Orri Hauksson lætur af störfum sem forstjóri Símans í sumarlok. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips.

Orri lætur af störfum nokkrum eftir að Magnús Ragnarsson náinn samverkamaður hans lét af störfum. Í febrúarlok var tilkynnt um starfslok Magnúsar en hann starfaði sem framkvæmdastjóri miðla Símans en rétt eins og í tilkynningu sem Síminn sendi frá sér í morgun kom fram að hann myndi starfa eitthvað áfram með félaginu.

Orri Hauksson lætur af störfum sem forstjóri Símans í sumarlok. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips.

Orri lætur af störfum nokkrum eftir að Magnús Ragnarsson náinn samverkamaður hans lét af störfum. Í febrúarlok var tilkynnt um starfslok Magnúsar en hann starfaði sem framkvæmdastjóri miðla Símans en rétt eins og í tilkynningu sem Síminn sendi frá sér í morgun kom fram að hann myndi starfa eitthvað áfram með félaginu.

Fram kemur í tilkynningu Símans að Orri hafi starfað hjá Símanum í ríflega áratug og leitt félagið gegnum miklar breytingar og endurskipulagningu svo sem með sölu á Mílu og Sensa og kaupum á Billboard og Noona. Á sama tíma hefur félagið skilað stöðugt bættri afkomu ásamt því að ávöxtun hlutafjár hefur verið góð.

„Eftir að hafa starfað lengi hjá þessu frábæra félagi, Símanum, er heilbrigt fyrir félagið og sjálfan mig að nýr kafli hefjist. Síminn hefur tekið grundvallarbreytingum undanfarin ár og þróunin mun halda áfram. Félagið á tækifæri á fjölmörgum sviðum, svo sem í kjarnastarfsemi félagsins í fjarskiptum og sjónvarpi, en ekki síður í fjártækni, nýmiðlun auglýsinga og stafrænni þjónustu,“ segir Orri Hauksson, fráfarandi forstjóri Símans.

„Það er ekki einfalt að kveðja góða vini hér innanhúss en nú er góður tími fyrir nýjan forstjóra að taka við keflinu. Ég óska Maríu Björk velfarnaðar í að leiða þann öfluga hóp sem fyrir er til að ná árangri í því síkvika samkeppnisumhverfi sem Síminn starfar.“

Staða kvenna í Kauphöllinn styrkist

María Björk Einarsdóttir hefur starfað sem fjármálastjóri Eimskips frá árinu 2021. Hún starfaði ‏þar áður sem framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags, sem hét áður Almenna leigufélagið, árin 2015-2021. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur í sérhæfðum fjárfestingum hjá Gamma Capital Management árin 2013-2014 og sem sérfræðingur hjá Íslandsbanka árin 2012-2013.

„Síminn er vel rekið og framsækið fyrirtæki sem hefur verið leiðandi á sínum kjarnamörkuðum, bæði þegar kemur að þjónustustigi og vöruþróun. Ég er þakklát fyrir tækifærið til að leiða félagið í gegnum næsta kafla, eftir vel heppnaða umbreytingu síðustu ár,“ segir María Björk Einarsdóttir, verðandi forstjóri Símans.

„Verkefnin framundan snúast ekki síst um að byggja ofan á þann trausta grunn sem þar var lagður, nýta sterka innviði og þá miklu reynslu og þekkingu sem mannauður félagsins býr yfir til þess að breikka og þróa þjónustuframboðið og styrkja þannig tekjugrunn félagsins enn frekar. Ég er full tilhlökkunar að slást í hópinn með því öfluga teymi sem starfar hjá Símanum.“

Þegar María Björk tekur við störfum verða fjórar konur forstjórar í skráðum félögum í Kauphöllinni. Margir hafa haft áhyggjur af þeirri staðreynd undanfarin ár.

Fyrir á fleti voru Margrét B. Tryggvadóttir sem hefur stýrt Nova um árabil, Herdís Fjeldsted forstjóri Sýnar og Ásta Fjeldsted sem stýrir Festi. Sérstaka athygli vekur að öllum skráðu fjarskiptafélögunum verður stýrt af konum þegar María Björk tekur við stjórn Símans.