Hildur Ýr Viðarsdóttir, skiptastjóri þrotabús Kamba byggingavara, hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í allar eignir þrotabúsins og þann rekstur sem Kambar höfðu með höndum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landslaga. Óskað er eftir að áhugasamir aðilar lýsi yfir áhuga með tölvupósti á netfangið [email protected].

Gert er ráð fyrir að viðkomandi aðilar fái í kjölfarið aðgang að gögnum um Kamba og eignir þrotabúsins gegn undirritun trúnaðaryfirlýsingar. Í framhaldinu verður boðið upp á kynningarfund.

Gert er ráð fyrir því að aðilar geri óskuldbindandi tilboð í allar eignir og rekstur félagsins fyrir klukkan 16 þann 24. apríl næstkomandi. Heimilt er að senda inn frávikstilboð.

Staðlað tilboðsform verður afhent aðilum til útfyllingar fyrir lok tilboðsfrests. Skiptastjóri mun meta tilboðin og taka ákvörðun um viðræður við einn eða fleiri tilboðsgjafa í kjölfarið. Skiptastjóri hefur ráðið ARMA Advisory til þess að veita ráðgjöf við sölu á eignum og rekstri Kamba.

Kambar byggingavörur var úrskurðað gjaldþrota þann 2. apríl sl. Félagið starfrækir glerverksmiðju á Hellu, gluggaframleiðslu í Þorlákshöfn, álframleiðslu í Hafnarfirði og skrifstofur og lager í Kópavogi.

Kambar veltu 1,5 milljörðum króna og töpuðu 57 milljónum króna árið 2023 samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins. Eignir voru bókfærðar á 1,7 milljarða króna og eigið fé var um 366 milljónir í árslok 2023. Fjöldi ársverka á árinu 2024 námu 53.

Karl Wernersson er stofnandi Kamba. Fyrirtækið tók upp nafnið Kambar árið 2022 í kjölfar sameiningar fjögurra rótgróinna íslenskra framleiðslufyrirtækja: Glerverksmiðjunnar Samverks á Hellu, Trésmiðjunnar Barkar á Akureyri, Gluggasmiðjunnar Selfoss og Sveinatungu.

Í tilkynningu á vef Landslaga kemur fram að Kambar sé einn stærsti framleiðandi landsins á gluggum, hurðum, gleri og svalahandriðum fyrir íslenskar aðstæður. Félagið búi yfir íslensku hugviti og áratuga reynslu af því að framleiða gæðavörur sem standist kröfuharðar íslenskar aðstæður.