Guðmundur Ragnarsson, vélfræðingur og fyrrum verkalýðsleiðtogi, gagnrýnir harðlega núverandi ríkisstjórn í nýrri færslu á Facebook.
Þar lýsir hann áhyggjum sínum af því að ákvarðanatöku stjórnvalda sé stýrt án langtímahugsunar eða skynsemi og líkir vinnubrögðunum við það sem hann segir hafa leitt til „klúðurs“ í Reykjavík.
„Maður er eiginlega orðinn kjaftstopp, að vera 68 ára evrópusinnaður jafnaðarmaður og þurfa ítrekað að taka undir gagnrýni Sjálfstæðisflokksins og annarra á störf ríkisstjórnarinnar er skelfilegt. Ég mun aldrei taka þátt í pólitík án þess að vera með mínar skoðanir, að vera í pólitískum sértrúasöfnuði eins og þetta er að verða er ekki fyrir mig,“ skrifa Guðmundur.
„Það sækir að mér sá ótti að framferði og ákvörðunartaka núverandi stjórnvalda í flestum málum sé gerð án nokkurrar framtíðarhugsunar eða af skynsemi,“ skrifar Guðmundur og segir vinnubrögðin minna sig á tíð Dags B. Eggertssonar í borgarstjórn.
Í færslunni fer Guðmundur hörðum orðum um fyrrverandi forystufólk úr verkalýðshreyfingunni sem nú situr á þingi og segir þá hafa glatað tengslum við hagsmuni almennings.
„Hvernig talað er um þá sem gagnrýna störf núverandi ríkisstjórnar er með ólíkindum, það er eins og þetta sé samansafn af heilalausu fólki sem man ekki hvað það sagði og hagaði sér fyrir nokkrum misserum síðan þegar það var í stjórnarandstöðu. Hvert stefnir þetta samfélag? Nú er allur popúlisminn að koma fram og hér væri hægt að skrifa langan pistil um stjórnarliða, ráðherra og fyrrverandi forystumenn í verkalýðshreyfingunni um óheiðarleikann og hræsnina.“
Hann gagnrýnir einnig afstöðu þeirra til launahækkana ráðamanna. „Að 5,6% launahækkun æðstu ráðamanna samfélagsins eigi að standa er galin og 1000% úr takti við allt sem þetta fólk hefur sagt til að fá atkvæði.“
Guðmundur beinir einnig gagnrýni sinni að Sigmari Guðmundssyni og húsnæðis- og félagsmálaráðherranum Ingu Sæland.
„Hægt væri að taka sérstaklega fyrir Sigmar Guðmundsson, þann flautaþyril og Ingu Sæland sem er gersamlega siðlaus og án raunveruleikatengingar svo einhver séu nefnd. Hlusta svo á undirsátana og leigupennana sem þreytast ekki á því að koma með sömu fullyrðingarnar um að öll gagnrýnin sé vegna þess að menn töpuðu kosningum og séu svo sárir.“
„Eitt af því sem sérstaklega mætti horfa á er mál sem fyrrverandi forystumenn úr verkalýðshreyfingunni ættu að vera brálaðir yfir og heimta að verði lagfært. Láti þeir það fara í gegn að jöfnun örorkubyrgða lífeyrissjóða verði tekin af þá eru þetta ómerkilegir einstaklingar og hræsnarar. Þessum óheiðarleika og hræsni verðum við að vinna á móti og við eigum ekki að þreytast á að benda á það þvert á pólitíska flokka. Málefnaleg rökræða er grunnurinn að því að okkur takist að leysa málefni samfélagsins farsællega.“