Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kom m.a. inn á stöðuna á fasteignamarkaði á síðasta kynningarfundi Seðlabankans þar sem farið var yfir ákvörðun peningastefnunefndar um að lækka stýrivexti um 25 punkta, niður í 7,5%.
„Það eru ýmsir þættir sem hafa ekki komið fram, eins og á fasteignamarkaði. Þar er umframframboð að byggjast upp – það hefur ekki enn þá komið fram,“ sagði Ásgeir.
Hann velti því einnig fyrir sér á fundinum hvort það fari ekki að myndast meiri þrýstingur niður á við á fasteignaverð.
Spurður um hvort hann telji að seðlabankastjóri sé með þessu að spá fyrir um lækkun fasteignaverðs eða hvort hann eigi við að fasteignaverð muni ekki hækka jafn mikið og undanfarin ár, segir Kári S Friðriksson, hagfræðingur í greiningardeild Arion banka, hægt að túlka orð Ásgeirs á báða vegu.
„Þegar við vorum að spá fyrir þróun fasteignaverðs síðasta haust reiknuðum við með að það myndi taka tímabundna dýfu, a.m.k. að raunvirði og jafnvel nafnvirði. Sú þróun átti sér stað í minni mæli og yfir mun styttra tímabil en ég átti von á. Frá áramótum hefur íbúðaverð farið hækkandi. Þegar leiðrétt er fyrir gæðum þeirra íbúða sem eru til sölu og verðþróun sambærilegra íbúða skoðuð sést að íbúðaverð hefur hækkað markvert á árinu. Þessi þrýstingur niður á við á verðinu, sem maður átti von á að myndi leysast úr læðingi, hefur ekki gert það enn sem komið er. Ef verð halda áfram að hækka meðan ytri aðstæður eru eins og þær hafa verið, hvað gerist þá þegar íbúðalánavextir, sérstaklega verðtryggðir vextir, taka að lækka á ný?“ spyr hann.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.