Seðlabanki Noregs, Norges bank, tilkynnti í morgun um sína fyrstu vaxtalækkun í fimm ár eða frá árinu 2020. Bankinn lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig, niður í 4,25%.
Í umfjöllun Reuters segir að ákvörðunin hafi komið flestum greinendum á óvart og leitt til þess að norska krónan hefur veikst í dag.
Seðlabankinn gaf til kynna að frekari vaxtalækkanir væru í vændum vegna batnandi verðbólguhorfa. Bankinn gerir ráð fyrir að stýrivextir verði rétt undir 4% í lok þessa árs og um það bil 3% undir árslok 2028.
Kjarnaverðbólga í Noregi hjaðnaði meira en gert var ráð fyrir í maí, og fór niður í 2,8%. Hún er þó áfram yfir 2,0% markmiði Norges bank.