Þeim sem þekkja til reksturs Icelandair dylst ekki að mikilvægi Bandaríkjamarkaðar fyrir starfsemi félagsins. Í byrjun árs tók Donald Trump við sem forseti Bandaríkjanna í annað sinn og hafa fyrstu mánuðir hans í embætti hafist með látum, eins og við mátti búast. Nægir þar að nefna áhrif tollastefna hans á heimshagkerfið og tilheyrandi óvissu. Við slíkar aðstæður heldur fólk oft að sér höndum og því er óttast að þetta óvissuástand dragi úr erlendum ferðalögum Bandaríkjamanna.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir þetta ekki hafa haft áhrif á bókanir frá Bandaríkjunum í sumar og staðan sé áfram sterk. Aftur á móti sé bókunarstaðan inn í síðari hluta haustsins og veturinn verri en á sama tíma í fyrra.
„Óvissan í heimshagkerfinu er að hafa áhrif á okkur rétt eins og önnur flugfélög um allan heim. Óvissa hefur alltaf neikvæð áhrif á ferðalög. Bókunarglugginn hjá okkur og þeim flugfélögum sem við höfum rætt við hefur styst. Fólk er tregara til að bóka ferðir langt fram í tímann en áður en svo þegar nær dregur taka bókanirnar við sér. Við þurfum svo bara að bíða og sjá hver þróunin verður inn í haustið og veturinn.“
Til marks um óvissuástandið hefur staða flugfélaga á alþjóðavísu versnað samkvæmt Alþjóðasambandi flugfélaga (IATA). Spenna á alþjóðlegum mörkuðum hafi haft áhrif auk þess sem neytendur haldi að sér höndum, m.a. vegna verðlags. Þó sagði Willie Walsh, framkvæmdastjóri IATA, í samtali við Bloomberg að hann sé engu að síður bjartsýnn. Áskoranir sem iðnaðurinn glími við að svo stöddu muni ekki hafa áhrif til lengri tíma og eftirspurn eftir flugi verði enn sterk.
Bogi segir þetta óvissuástand endurspeglast í þeim fjölda flugfélaga sem hafa á síðustu vikum og mánuðum kippt afkomuspám sínum fyrir árið 2025 úr sambandi. „Mörg flugfélög, sérstaklega í Bandaríkjunum, hafa gripið til þessa ráðs vegna óvissunnar og áhrifa hennar á bókanir, og þar af leiðandi tekjur og afkomu.“
Icelandair er eitt þessara fjölda félaga sem hefur neyðst til að kippa afkomuspá sinni úr sambandi. Í uppgjörstilkynningu Icelandair um afkomu síðasta árs, sem birtist í lok janúar, var reiknað með að hagnaður yrði af rekstri félagsins árið 2025 og að EBIT-afkoma yrði jákvæð um 5,5-8 milljarða króna. Þremur mánuðum síðar, í uppgjörstilkynningu fyrsta ársfjórðungs þessa árs, kom aftur á móti fram að félagið gæti ekki staðfest afkomuspána fyrir árið í heild á þeim tímapunkti vegna óvissu á alþjóðamörkuðum. „Líkt og fyrr segir ríkir þessi óvissa helst um seinni hluta haustsins og veturinn. En þrátt fyrir allt stefnir í að annar og þriðji ársfjórðungur verði betri í ár heldur en í fyrra,“ segir Bogi.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.