Flugfélagið Play boðar „grundvallarbreytingu“ á viðskiptalíkaninu félagsins frá og með miðju næsta ári, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Megininntak þeirra er að stórefla þjónustu félagsins til sólarlandaáfangastaða frá Íslandi en draga töluvert úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu.“

Flugfélagið Play boðar „grundvallarbreytingu“ á viðskiptalíkaninu félagsins frá og með miðju næsta ári, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Megininntak þeirra er að stórefla þjónustu félagsins til sólarlandaáfangastaða frá Íslandi en draga töluvert úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu.“

Samhliða þessu tilkynnti félagið um að uppfærð afkomuáætlun gefi vísbendingar um að rekstrarafkoma félagsins verði verri en á síðasta ári, ólíkt því sem spáð hafði verið fyrir um. Félagið telur þó ekki þörf á auknu fjármagni til rekstrarins á næstunni.

Play segir að beint flug til áfangastaða félagsins í Suður-Evrópu hafi verið arðbært frá upphafi. Aftur á móti hafi afkoma Play af tengiflugi yfir Atlantshafið valdið vonbrigðum, sérstaklega á yfirstandandi ári.

„Markaðsaðstæður á Atlantshafinu hafa breyst á undangengnum misserum. Mikil framboðsaukning hefur verið á beinu flugi á milli Norður-Ameríku og Evrópu sem hefur haft neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu félagsins.“

Félagið segir að af þessum ástæðum hafi verið tekin ákvörðun um að draga verulega úr Norður-Ameríkuflugi félagsins. Sú breyting sé þegar hafin að nokkru leyti og mun sú þróun halda áfram á næsta ári.

Áfangastöðum félagsins í Norður-Ameríku og Norður-Evrópu verður fækkað frá og með miðju næsta ári. Á hinn bóginn verður áætlun félagsins til Suður-Evrópu enn efld.

Félagið áréttar að þessar breytingar muni hafa lítil eða engin áhrif á þá farþega Play sem hafa nú þegar bókað flug með félaginu.

Sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu

Þá segist Play vilja auka fjölbreytni í nýtingu flugflota síns, sem telur nú tíu vélar, meðal annars með því að fljúga fyrir aðra aðila utan Íslands. Fyrsta verkefni félagsins af þessum toga hefst þegar í næsta mánuði.

Um sé að ræða rúmlega fjögurra mánaða verkefni fyrir bandaríska flugfélagið GlobalX í Miami sem hefst þann 1. nóvember og lýkur þann 15. mars á næsta ári.

Þá hefur Play hafið umsóknarferli um flugrekstrarleyfi á Möltu til að greiða fyrir fjölbreyttari starfsemi á vegum félagsins. Flugfélagið reiknar með að því að nýja flugrekstrarleyfið verði í höfn næsta vor.

Stefnt er að því að fyrsta vél Play sem færð verður yfir á nýtt flugrekstrarleyfi verði staðsett á Tenerife og muni þaðan meðal annars fljúga til Keflavíkur og Akureyrar. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis.

Ekki þörf á auknu fjármagni á næstunni

Play segir að fjárhagsstaða félagsins sé áfram sterk og ekki sé talin þörf á auknu fjármagni til rekstrarins á næstunni. Uppfærð afkomuáætlun gefi þó vísbendingar um að rekstrarafkoma félagsins verði verri en á síðasta ári, ólíkt því sem spáð hafði verið fyrir um.

„Áhrif framboðsaukningar á flugi yfir Atlantshafið hafði þannig meiri áhrif á stöðu félagsins en ætlað var.“

„Frá stofnun Play hafa markaðsaðstæður breyst og tengiflugskerfi yfir Atlantshafið virðist félaginu ekki eins arðbært og áður. Þess vegna hefur sú leið verið farin að gera breytingar á viðskiptalíkani okkar sem taka gildi frá og með miðju næsta ári,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.

„Play er flugfélagið sem íslenski ferðalangurinn velur og hyggjumst við auka enn við okkur á þeim markaði. Með öðrum orðum ætlum við að einbeita okkur að þeim hluta rekstrarins sem hefur gengið vel og verið arðbær, það er flug með farþega á milli Suður-Evrópu og Íslands.

Play er með tíu farþegaþotur í rekstri og með breytingunum verða sex til sjö þeirra á íslenska flugrekstrarleyfinu á meðan hinar, þrjár til fjórar, verða notaðar í önnur verkefni. Þar erum við til dæmis að horfa til leigu á einni af vélunum okkar í verkefni í Miami yfir komandi vetur og þá eru til skoðunar heilsársverkefni sem fljótlega verður hægt að greina frá. Með þessum breytingum er ég sannfærður um að við sækjum fram og verðum áfram sá hagkvæmi kostur sem Íslendingar velja.“