Flugfélagið Play flutti 114.265 farþega í desember síðastliðnum, sem er 53% aukning frá desember 2022 þegar félagið flutti 74.620 farþega. Play flutti 1,5 milljónir farþega árið 2023 og var með sætanýtingu upp á 83,4% yfir árið, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Flugfélagið Play flutti 114.265 farþega í desember síðastliðnum, sem er 53% aukning frá desember 2022 þegar félagið flutti 74.620 farþega. Play flutti 1,5 milljónir farþega árið 2023 og var með sætanýtingu upp á 83,4% yfir árið, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Play var með sætanýtingu upp á 76,2% í desember 2023 og af þeim farþegum sem ferðuðust með Playí mánuðinum voru 24,5% á leið frá Íslandi, 28% voru á leið til Íslands og 47,6% voru tengifarþegar (VIA).

„Verkfallshrinur flugumferðarstjóra í liðnum desember höfðu áhrif á stundvísi Play í mánuðinum. PLAY var með 59% stundvísi í desember en yfir allt árið var stundvísi Play 83%. Það þýðir að af 9.600 flugferðum Play yfir árið 2023, voru um átta þúsund þeirra á réttum tíma. Meðal seinkun á flugferðum Play var um 5,4 mínútur,“ segir í tilkynningu Play til Kauphallarinnar.

„Ef ekki hefði komið til verkfallshrina flugumferðarstjóra hefði stundvísi Play verið um 86%.“

Play hafði áður tilkynnt að jarðhræringarnar á Reykjanesskaga myndu hafa neikvæð áhrif á farþegatölur í desember, janúar og febrúar. Að sama skapi kippti Play afkomuspá sinni fyrir árið úr sambandi.

„Nú má sjá sterkar vísbendingar um að félagið muni ekki finna fyrir þessum neikvæðu áhrifum til lengri tíma því eftirspurnin hefur á fyrstu dögum ársins tekið hraustlega við sér sem er afar jákvætt fyrir bókunarstöðu félagsins fyrir sumarið og komandi misseri,“ segir flugfélagið.

Flugfélagið segir meðal hliðartekjur hafi haldið áfram að aukast hjá Play. Meðal hliðartekjur hafi verið 29% hærri í desember 2023, samanborið við desember 2022.

„Við erum stolt af því að hafa náð markmiði okkar um að flytja 1,5 milljónir farþega á árinu 2023. Það er nærri því tvöföldun á farþegafjölda okkar árið 2022. Sætanýtingin okkar á árinu var mjög ásættanleg, eða 83%, sér í lagi ef litið er til krefjandi aðstæðna sem sköpuðust á seinustu tveimur mánuðum ársins,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

„Fyrstu vikur nýs árs eru afar mikilvægar upp á bókanir fyrir vorið og sumarið og það er traustvekjandi að sjá aukna eftirspurn skila okkur sterkri bókunarstöðu. Við höfum fullt tilefni til að horfa björtum augum á árið sem byrjar svona vel.“