Hlutabréfaverð Play er búið að lækka um 10,9% í meira en 3 milljóna króna viðskiptum frá opnun Kauphallarinnar í dag. Gengi hlutabréfa flugfélagsins féll einnig um 28% í gær.

Gengi félagsins stendur í 1,23 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð og hefur nú lækkað um tæplega 35% frá því að Play greindi frá því eftir lokun Kauphallarinnar á miðvikudaginn að rekstrarafkoma félagsins verði líklega verri en á síðasta ári, samkvæmt uppfærðri afkomuáætlun, ólíkt því sem spáð hafði verið fyrir um.

Samhliða boðaði Play „grundvallarbreytingar“ á viðskiptalíkani félagsins frá og með miðju næsta ári. Þá hefði félagið hafið umsóknarferli um flugrekstrarleyfi á Möltu og reiknar Play með að flugrekstrarleyfið verði í höfn næsta vor.

Play lauk 4,6 milljarða króna hlutafjáraukningu í vor þar sem útgáfuverðið var 4,6 krónur á hlut. Hlutabréfaverð Play hefur lækkað um 73,3% síðan þá og alls lækkað um meira en 84% í ár.