Play hefur náð samkomulagi um rekstur fjögurra véla úr flota flugfélagsins til ársloka 2027 fyrir erlendan flugrekanda með svonefndri ACMI leigu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Samkomulagið er við flugfélagið SkyUp sem einnig er með flugrekstrarleyfi á Möltu, en það er í eigu ferðaskrifstofunnar JoinUp. SkyUp og JoinUp eru aðallega með starfsemi í Austur-Evrópu, þar á meðal Póllandi, Eistlandi, Litháen, Móldóvu, Rúmeníu og Úkraínu. Vélarnar fjórar verða gerðar út frá Moldóvu og Póllandi.

Flugreksturinn mun fara fram í gegnum Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu.

Samningurinn nær nú til fjögurra véla

Samhliða birtingu ársuppgjörs Play var greint var frá að samkomulag við sama aðila væri í höfn um útleigu á þremur vélum, en endanleg niðurstaða er leiga á fjórum vélum.

Vélarnar fjórar sem samkomulagið nær um, munu bera einkennisliti SkyUp. Nú þegar hefur ein af þessum vélum verið sett í einkennisliti SkyUp og verður hún notuð í leiðakerfi Play á Íslandi fram í miðjan maí, þegar hún fer í verkefni á vegum SkyUp.

Vélin sem um ræðir verður mönnuð áhöfnum frá Fly Play hf. á meðan hún er á Íslandi, og áhafnirnar starfa þar með samkvæmt íslenskum kjarasamningum.

Taka inn eina þotu á leigu yfir sumarið

Í ljósi þess að fjórða vélin bættist við samninginn hefur Play ákveðið að taka inn eina þotu á leigu í flota sinn yfir komandi sumarmánuði. Verða þá sjö þotur í flota Play yfir annasömustu mánuði ársins, sem gerir félaginu kleift að halda úti öflugri áætlun til vinsælla áfangastaða í Bandaríkjunum og Evrópu og sólarlandaáfangastaða í Suður-Evrópu.

„Allt er þetta í samræmi við stefnu félagsins sem var uppfærð í október á síðasta ári. Þá var nýtt viðskiptalíkan kynnt sem boðaði að aukin áhersla yrði lögð á flug frá Íslandi til sólarlanda í Suður-Evrópu. Á sama tíma var greint frá því að búið væri að sækja um flugrekstrarleyfi á Möltu og að allt að fjórar vélar yrðu starfræktar af hálfu þess félags.“

„Þessir langtímaleigusamningar gera rekstur okkar mun fyrirsjáanlegri, stöðugri og hagfelldan. Það sem við erum að gera er að taka 40% af flotanum okkar úr óarðbærum verkefnum yfir í arðbær verkefni. Á meðan þessar fjórar vélar verða í þessum verkefnum munum við halda áfram okkar öflugu áætlun frá Íslandi til sólarlanda, sem hefur reynst mjög ábatasamt frá stofnun félagsins,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.

„Þetta sannar enn og aftur þann mikla þrótt sem býr í Play, að geta aðlagað sig og breytt um stefnu í takt við markaðsaðstæður. Samstarfsfólk mitt hjá Play hefur gefið sig allt í þessa vinnu og þekking þeirra hefur skilað okkur þessari nýju og bættu stöðu og á allt lof skilið. Við búum yfir ungum og eftirsóttum flota og við erum að nýta þá staðreynd okkur í hag. Þetta er stórt skref í átt að fjárhagslegum viðsnúningi félagsins og mun styrkja stoðir félagsins til framtíðar. Það gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða farþegum okkar upp á frábæra þjónustu á betra verði til fjölda vinsælla áfangastaða.“