Flugfélagið Play mun fljúga til Feneyja á Ítalíu í sumar. Fyrsta flugið verður 29. júní og mun áætlunin standa út september. Flogið verður tvisvar í viku á fimmtudögum og sunnudögum.
Play segir í tilkynningu að ítalska borgin Bologna hafi verið meðal vinsælustu áfangastaða flugfélagsins í fyrra. „Þessar miklar vinsældir urðu til þess að Play mun bjóða upp á Bologna í leiðakerfi sínu í sumar og bæta þar að auki við sig einni vinsælustu borg Ítalíu, Fenyjum.“
„Það er virkilega ánægjulegt að geta stækkað við okkur á Ítalíu. Þetta land nýtur svo mikilla vinsælda meðal Íslendinga og þess vegna finnst okkur mikilvægt að auka framboðið til Ítalíu og þar með samkeppnina sem verður alltaf til þess að flugmiða verðið lækkar, neytendum til hagsbóta,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.