Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Glasgow í Skotlandi. Fyrsta flugið verður föstudaginn 26. maí en félagið mun fljúga fjórum sinnum í viku til Glasgow, á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum.

„Leiðakerfið okkar fyrir sumarið er stórglæsilegt og mun Glasgow styrkja það enn frekar. Við munum fljúga til hátt í fjörutíu áfangastaða sem gerir það að verkum að Íslendingar hafa úr miklu að velja til að komast á hagkvæman hátt erlendis. Glasgow styrkir þar að auki Norður-Ameríku leiðakerfið okkar enn frekar,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.