Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Orlando í Bandaríkjunum. Fyrsta flug Play til Orlando verður þann 30. september og verður flogið þangað þrisvar í viku. Flogið verður til Orlando International flugvallar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Þetta verður fjórði áfangastaður PLAY í Bandaríkjunum en hinir þrír áfangastaðirnir eru Boston, Baltimore/Washington DC og New York.
Í tilkynningu Play segir að ný Airbus A321neo Long Range (LR) flugvél, sem væntanleg er í flota félagsins þegar nær dregur sumri, geri félaginu kleift að fljúga til Orlando. Play hefur hingað til notast við Airbus A321neo flugvélar en Airbus A321neo LR er sambærileg vél, en hefur það fram yfir systurvélar sínar að geta borið meira eldsneyti og hefur því meiri drægni.
Birgir Jónsson, forstjóri Play:
„Með tilkomu Airbus A321neo LR komust við inn á markaði sem áður voru ekki opnir PLAY. Við notum nýjustu kynslóð af A320/1neo frá Airbus-framleiðandanum sem er eftirsóttasta flugvél í heiminum í dag og mun Long Range-útgáfan af þessum vélum koma að góðum notum.
Ég er sannfærður um að innkoma okkar í Orlando muni hrista verulega upp í Flórída-markaðnum. Við höfum skoðað það verð sem samkeppnisaðilar okkar hafa boðið upp á til og frá svæðinu og teljum okkur auðveldlega geta boðið mun lægra verð á þessari vinsælu flugleið, bæði þeim fjölmörgu Íslendingum sem leggja leið sína til Flórída og tengifarþegum milli Flórída og Evrópu. PLAY er alvöru lággjaldaflugfélag sem hefur það að markmiði að bjóða hagstæðasta verðið á markaðnum. Með tilkomu okkar á þennan vinsæla áfangastað munu fleiri geta ferðast til Flórída og upplifað þetta frábæra svæði.“