Þann 1. janúar 2023 mun Pósturinn breyta verði á bréfum, fjölpósti og pakkasendingum innanlands. Í fréttatilkynningu segir Pósturinn að verðhækkunin sé til komin vegna aukins flutningskostnaðar, svo sem vegna launa og eldsneytis. Nýja verðskrá má nálgast hér.
„Við höfum reynt eftir bestu getu að halda verðhækkunum í lágmarki en ýmsar kostnaðarhækkanir frá síðustu verðbreytingum neyða okkur til að bregðast við með þessum hætti. Þörf fyrir hækkun er mismunandi eftir vöruflokkum vegna minnkandi umsvifa í sumum þeirra á sama tíma og heimilum fjölgar. Við hvetjum viðskiptavini okkar til þess að kynna sér þær breytingar sem taka munu gildi nú um áramótin,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins.
Verð á pakkasendingum innanlands hækkar um 5-10% eftir landsvæðum. Þá tekur verðskrá bréfa innanlands einnig breytingum og jafnframt munu einhverjir þyngdarflokkar sameinast sem á að einfalda verðskrána.
„Magn bréfa hefur dregist verulega saman á sama tíma og flutningskostnaður hefur hækkað umtalsvert,“ bætir Þórhildur við.