Verðbólga í Rússlandi hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu mánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,5% í nóvember og jókst um 0,8% milli mánaða.
Samkvæmt frétt The Economist óttast rússneski seðlabankinn að þau séu að missa stjórnina. Bankinn hækkaði nýverið stýrivexti um tvö prósent og er viðbúið að önnur eins hækkun sé í kortunum við næstu ákvörðun á föstudag.
Hagfræðingar telja að ein helsta ástæðan fyrir mikilli verðbólgu sé gríðarleg eyðsla Vladimírs Pútin Rússlandsforseta í stríðið í Úkraínu en á næsta ári munu framlög til varnarmála nærri tvöfaldast og nema 6% af vergri landsframleiðslu.