Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, hefur ráðið Heiðrúnu Hödd Jónsdóttur í nýja stöðu sérfræðings í sjálfbærnimálum hjá sjóðnum.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, hefur ráðið Heiðrúnu Hödd Jónsdóttur í nýja stöðu sérfræðings í sjálfbærnimálum hjá sjóðnum.

Heiðrún mun leiða framkvæmd á sjálfbærnistefnu sjóðsins, sem nær bæði til fjárfestinga sjóðsins og innri starfsemi hans.

„Sjálfbærni verður sífellt mikilvægari hvort sem það er í daglegu lífi okkar eða starfsemi fyrirtækja og stofnana. Með sjálfbærni er vísað til þess hvernig uppfylla megi þarfir núverandi kynslóða án þess að skerða þarfir komandi kynslóða og stuðla á sama tíma að jafnvægi milli hagvaxtar, umhverfis, félagslegrar velferðar og ábyrgra stjórnarhátta,“ segir í tilkynningu á vef LSR.

„Auknar kröfur eru gerðar um að rekstur sé í samræmi við gildandi sjálfbærniviðmið og reglur um upplýsingagjöf. Í takt við þetta hefur LSR jafnt og þétt aukið áherslu sína á sjálfbærni og er ný staða sérfræðings í sjálfbærni liður í þeirri vegferð.“

Heiðrún kemur til LSR frá Deloitte í Danmörku þar sem hún vann við ráðgjöf, áhættugreiningu og skýrslugerð í tengslum við sjálfbærni fyrirtækja. Hún hefur masterspróf í alþjóðasamskiptum frá Roskilde-háskóla og er með diplómu í sjálfbærnifræðum frá Oxford-háskóla.

„Fyrir LSR sem fjár­festi þýðir þetta ekki bara að sjóðurinn þurfi að tryggja sjálf­bærni í eigin starf­semi, heldur líka að þau fyrir­tæki og sjóðir sem fjár­fest sé í fylgi viður­kenndu verk­lagi í þessum efnum.“

Í tilkynningunni segir Heiðrún, sem er nýflutt heim eftir sjö ára veru í Danmörku, að sjálfbærnimál séu að mörgu leyti komin lengra á veg á meginlandi Evrópu heldur en hér heima. Það helgist m.a. af því að innan ESB hafi lög og reglugerðir tekið fyrr gildi en innan EES.

„Það er ákveðinn kostur að hafa unnið í umhverfi þar sem lagarammi og verklag var komið lengra á veg en hér heima, því þá veit ég hvað er í vændum á íslenska markaðnum, hvað þurfi að framkvæma og með hvaða hætti,“ segir Heiðrún.

Heiðrún segir að hingað til hafi fyrirtæki og stofnanir getað valið hvers konar sjálfbærniverklag skuli taka upp og hvaða stöðlum skuli fylgja í þeim efnum. Það hafi leitt til minna gagnsæis og aukið líkur á grænþvotti.

Nú sé hins vegar verið að taka upp skýrari lagaramma og staðla sem öll fyrirtæki og stofnanir þurfa að fara eftir, bæði hvað varðar sjálfbærni í starfsemi, fjárfestingum og upplýsingagjöf.

„Allt er þetta gert til að auka gagnsæi, áreiðanleika og ábyrgð fyrirtækja og stofnana þegar kemur að sjálfbærni. Þar með þurfum við öll að taka sjálfbærni fastari tökum, bæði hvað varðar verklag og upplýsingagjöf. Fyrir LSR sem fjárfesti þýðir þetta ekki bara að sjóðurinn þurfi að tryggja sjálfbærni í eigin starfsemi, heldur líka að þau fyrirtæki og sjóðir sem fjárfest sé í fylgi viðurkenndu verklagi í þessum efnum. Þess vegna þurfum við að byggja upp þekkingu og efla verklag hvað þetta varðar,“ segir Heiðrún.

„Það er stefna LSR að vera leiðandi á sviði sjálfbærni, enda horfum við til langs tíma í starfsemi okkar. Þannig setjum við líka gott fordæmi sem nýtist vonandi sem flestum hér heima, því þetta er vegferð sem öll fyrirtæki og stofnanir á landinu þurfa að leggja upp í á komandi árum,“ segir Heiðrún.