Emma Tucker, ritstjóri The Sunday Times, hefur verið ráðin aðalritstjóri The Wall Street Journal og verður hún fyrsta konan til að gegna stöðunni hjá viðskiptafjölmiðlinum. News Corp, fjölmiðlafyrirtæki Rupert Murdoch, rekur báða miðlana.

Tucker mun taka við stöðunni í byrjun febrúar af Matt Murray sem hefur starfað hjá WSJ í nærri þrjá áratugi, þar af síðustu fjögur árin sem aðalritstjóri. Murray tekur við háttsettri stöðu hjá News Corp samstæðunni.

Tucker hefur verið ritstjóri The Sunday Times í rúm þrjú ár. Í frétt WSJ segir að meðal eftirtektarverðustu fréttum breska fjölmiðilsins á hennar tíma hafi verið umfjöllun um kórónuveirufaraldurinn, þar á meðal misfarir bresku ríkisstjórnarinnar í sottvarnaraðgerðum.

Jafnframt er minnst á áherslu hennar á notendavöxt The Sunday Times en á hennar vakt hefur rafrænum áskriftum fjölgað um nærri helming. Fjöldi rafrænna áskrifta var 450 þúsund í september síðastliðnum.

Tucker hóf feril sinn í blaðamennsku hjá Financial Times og var um tíma ritstjóri FT Weekend. Hún starfaði sem aðstoðarritstjóri The Times of London áður en hún var ráðin ritstjóri The Sunday Times.