Stjórn Landsnets hefur ráðið Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra Alþingis, sem forstjóra fyrirtækisins og mun hún hefja störf þann 1. ágúst. Hún tekur við stöðunni af Guðmundi Inga Ágústssyni sem tilkynnti í lok síðasta árs um að hann hafi ákveðið að láta af störfum.
Ragna var valin úr hópi 52 umsækjenda, hefur viðtæka þekkingu á orkumálum og var m.a. aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar í átta ár, að því er segir í tilkynningu frá Landsneti.
Ragna er lögfræðingur að mennt, með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands, auk þess að vera með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi.
Hún hefur starfað á skrifstofu Alþingis, skrifstofu Norðurlandaráðs og í ráðuneytum. Þá hefur hún gegnt embætti dóms- og kirkjumálaráðherra og síðar embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra og var aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar í átta ár.
„Það er bæði spennandi áskorun og mikill heiður að fá tækifæri til að leiða Landsnet, sem er framsýnt og traust fyrirtæki, á þessum umbreytingatímum í orkumálum. Það skiptir sköpum að fyrirtækinu gangi vel í að byggja upp flutningskerfið til að mæta bæði áskorunum samtímans og framtíðarinnar. Fyrir mig eru það mikil forréttindi að fá að leiða þetta öfluga teymi hjá Landsneti og leggja með þeim drög að framtíðinni og frekari árangri sem stuðlar að bættum lífsgæðum þjóðarinnar með öruggri og aðgengilegri orku,“ segir Ragna.
„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fá Rögnu til að leiða Landsnet inn í framtíðina með sterku teymi starfsfólks fyrirtækisins. Hún hefur sýnt framúrskarandi leiðtogahæfni í störfum sínum og býr yfir margþættri stjórnunarreynslu. Auk þess hefur hún verið farsæll stjórnandi með yfirburðaþekkingu á íslensku samfélagi og orkumálum. Við erum afar ánægð að fá jafn kraftmikla konu og hana til að stýra þessu mikilvæga fyrirtæki og bjóðum hana velkomna til Landsnets,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Landsnets.