Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður VR, hefur tjáð sig um tæplega 10 milljóna króna eingreiðslu sem hann fékk frá VR vegna starfsloka hjá félaginu. Hann segir að hann og eiginkona hans hafi ákveðið að halda biðlaunum þar sem hann hafi litið á þau sem „mjög tímabundna afkomutryggingu“.
„Ástæða þess að við hjónin ákváðum að halda biðlaunum er fyrst og fremst sú að ég hef litið á biðlaunin sem mjög tímabundna, afkomutryggingu, þar sem forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur jafnan átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eftir starfslok,“ segir Ragnar Þór í færslu á Facebook.
Ragnar Þór, sem var formaður VR á árunum 2017-2024, segir að formannsstarfið felist í grunninn um aðhald gegn SA og fleiri samtökum sérhagsmuna. Þeir formenn sem hafa gengið harðar fram en almennt þekkist séu því í veikari stöðu með framtíðar atvinnu en aðrir „og eru fjölmörg dæmi um það“.
„Sem fimm barna faðir og líklega sá forystusauður innan verkalýðshreyfingarinnar sem gengið hefur hvað harðast fram gegn þeim sem allt eiga, og öllu ráða, í íslensku samfélagi tel ég mig vera berskjaldaðri en margir aðrir í minni stöðu. Við tókum því þessa ákvörðum um að leggja biðlaunin inn á neyðarsjóð fjölskyldunnar og nýta hann þegar þess verður þörf.
Ég bý ekki við þann lúxus að geta farið í leyfi, eins og opinberir starfsmenn, og gengið að starfi eftir að þingsetu líkur eða þeim réttindum sem því fylgja, eins og biðlaunum.“
Segist hafa lækkað laun sín um 400 þúsund á mánuði
Ragnar Þór staðfestir að biðlaunin samsvari sex mánaða launum hans hjá VR eða um 8 milljónir króna fyrir skatt. Þetta sé hluti af þeim starfskjörum sem hann hafi samið um í upphafi formannstíðar sinnar.
Hann setur þetta í samhengi við ákvörðun sína um að lækka laun sín um 300 þúsund krónur á mánuði þegar hann tók við sem formaður árið 2017.
„Ein af forsendum þess var að halda öðrum réttindum eins og biðlaunum sem eru alla jafna 6 mánuðir hjá forystufólki innan verkalýðshreyfingarinnar.“
Hann segist einnig hafa farið fram á að laun sín yrðu helminguð þegar hann tók við formennsku í Landssambandi íslenskra verslunarmanna (LÍV) í mars 2019. Þing LÍV hafi hins vegar aðeins samþykkt að lækka þau um 25%, eða um 100 þúsund krónur á mánuði. Samtals hafi hann því lækkað laun sín um 400 þúsund á mánuði.
Hann áætlar að samtals hafi hann lækkað laun sín á um 40,6 milljónir, sem VR/LÍV greiddi sér í lægri launum en annars hefði.
„Á þeim rétt 8 árum sem ég gegndi formennsku í VR, og 6 árum í LÍV, tók ég aldrei meiri hækkun launa en kjarasamningar kváðu um. Reyndar afsalaði ég mér launahækkunum í kringum lífskjarasamninginn 2019.“
Að lokum segist hann hafa fullan skilning á því að þetta máli slái fólk illa. Hann hafi því viljað koma sjónarmiðum sínum á framfæri.