Samkvæmt tilkynningu frá Icelandair verður flug frá Evrópu til Íslands eftir hádegið á morgun seinkað um 24 tíma og verður þá öllu flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis á morgun aflýst.
Slæmt veður sem gengur yfir landið mun þá hafa áhrif á flugáætlun Icelandair bæði á morgun, miðvikudaginn 5. febrúar og fimmtudaginn 6. febrúar.
Í tilkynningu segir að flug til Evrópu í fyrramálið sé á áætlun en seinkun verður hins vegar á flugi til Tenerife.
„Áfram verður búist við röskunum á fimmtudaginn. Alls hefur 38 flugferðum til og frá landinu á miðvikudag og fimmtudag verið aflýst. Nánari upplýsingar á heimasíðu Icelandair þar sem nýjustu upplýsingar er að finna á hverjum tíma.“
Farþegar sem áttu bókað með flugi sem nú hefur verið aflýst verða endurbókaðir og munu fá senda nýja ferðaáætlun. Flugfélagið segir hins vegar að vegna umfangs röskunarinnar má búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega.
„Farþegum er bent á að fylgjast vel með þeim skilaboðum sem félagið sendir auk þess sem hægt er að fylgjast með á vef félagsins undir bókunin mín og í Icelandair appinu. Ekki er þörf á að hafa samband við Icelandair nema ný ferðaáætlun falli ekki að ferðalaginu.“