Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í ágúst, samanborið við 0,8% hækkun í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 10,8% en hún mældist 11,0% í júlí.

Á mælikvarðar raunverðs hækkar árstakturinn hins vegar um 0,1 prósentustig milli mánaða og stendur nú í 4,5%, að því er segir í tilkynningu á vef HMS.

HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,9% milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,5% á ársgrundvelli. Í ágúst hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 2,2% milli mánaða og hefur nú hækkað um 14,4% á síðustu tólf mánuðum.

Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni lækkaði um 0,2% milli mánaða og hefur hækkað um 13,7% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 1,3% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,9% á ársgrundvelli.