Hagnaður Regins nam 5,1 milljarði á fyrstu níu mánuðum ársins sem er 10,6% meiri hagnaður en á fyrri árshelmingi 2022 þegar hagnaður félagsins nam 4,6 milljörðum króna.
Samkvæmt árshlutauppgjöri voru rekstrartekjur félagsins 10,1 milljarður á fyrstu níu mánuðum ársins og leigutekjur hækkuðu um 14,7% á milli ára.
„Nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Í kjölfar straumlínulögunar eignasafnsins hefur tekjuberandi fermetrum og eignum fækkað á milli ára,“ segir í uppgjöri félagsins.
Hagnaður á hlut eykst
EBITDA-afkoma félagsins hækkar um 13,1% á milli ára og nam 6,9 milljörðum króna. Samkvæmt uppgjörinu leiðir hækkun áhættulausra vaxta í september 2023 til lækkunar á virðismati um tæplega 1,4 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi, en virðismat er jákvætt um 8,7 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.
Handbært fé Regins frá rekstri nam 3,8 ma.kr. og var handbært fé 3,8 milljarðar króna í lok tímabils. Vaxtaberandi skuldir voru 115,8 milljarðar í lok tímabils og hækkuðu um 6,7 milljarða frá áramótum.
Skuldahlutfall var 63,9% og eiginfjárhlutfall 30,4% í lok tímabils.
Hagnaður á hlut fyrir tímabilið nam 2,81 kr. en var 2,54 kr. á sama tíma í fyrra.
„Rekstur félagsins er í takt við uppfærða áætlun sem birt var í kynningu á hálfsársuppgjöri. Tekjuvöxtur er 14,7% á fyrstu níu mánuðum ársins sem jafngildir 5,3% rauntekjuvexti. Útleiguhlutfall er 97,5% sem er sambærilegt og verið hefur. Um 45% af tekjum félagsins koma frá opinberum aðilum annars vegar og skráðum fyrirtækjum hins vegar. Vanskil leigutaka eru lág og mörg útleiguverkefni í burðarliðnum.
Þrjú þróunarverkefni fara í útleigu á næstu misserum. Sunnuhlíð 12 á Akureyri sem er nýr heilsutengdur þjónustukjarni. Eignarhluti Regins er samtals um 4.700 m2 og þar af eru um 4.070 m2 af nýjum eða endurbyggðum rýmum. Nú þegar hafa um 2/3 rýmisins verið leigðir út, þar af 1.840 m2 fyrir heilsugæslustöð, 570 m2 undir sjúkraþjálfun og 250 m2 undir lyfjaverslun. Á þriðju hæð í Smáralind er unnið að um 3.000 m2 hágæða skrifstofurými, þar af um 1.000 m2 í fyrsta áfanga sem tilbúinn verður nú um áramót. Að auki eru fyrstu leigutakar að taka við verslunarrýmum í Smárabyggð, samtals um 1.850 m2 af nýjum verslunar- og þjónusturýmum við Sunnu- og Silfursmára í Kópavogi,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri í uppgjörinu.
Virði fjárfestingareigna Regins að frádregnum leigueignum er metið á 181.074 milljónir króna. Samkvæmt uppgjöri samanstendur safnið nú af 100 fasteignum sem alls eru um 373 þúsund fermetrar.
„Útleiguhlutfall er um 97,5% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Heildarmatsbreyting fyrstu níu mánuði ársins nam 8.711 m. kr. en hækkun áhættulausra vaxta í september 2023 hafði neikvæð áhrif á virðismat fjárfestingareigna á þriðja ársfjórðungi.“
Fermetrafjöldi eignasafns félagsins hefur lækkað um 2,3% frá byrjun árs 2022 en leigutekjur hækka um 14,7% á fyrstu níu mánuðum þessa árs í samanburði við sama tímabil árið 2022.
Eitt skilyrði af þrem fyrir yfirtökunni samþykkt
Þann 8. júní 2023 tilkynnti Reginn um ákvörðun stjórnar félagsins um að lagt yrði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags.
„Samkvæmt tilboðsyfirlitinu, eins og því var breytt með viðauka dags 14. september, munu hluthafar Eikar fá 1.670.351.049 hluti í Regin eða 48,0% útgefins hlutafjár í kjölfar viðskipta miðað við útgefið hlutafé Regins þann 13. september 2023. Tilboðsverðið og þar með skiptihlutfallið (48,0%) er ákvarðað með hliðsjón af markaðsvirði hvors félags fyrir sig miðað við dagslokagengi hlutabréfa þeirra þann 12. september síðastliðinn. Tilboðið mun taka til allra hluta í Eik sem ekki eru þegar í eigu Eikar. Fyrir á Reginn enga hluti í Eik.“
Í uppgjörinu er greint frá því að tilboðsfrestur valfrjáls yfirtökutilboðs í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. Samningurinn hefur verið framlengdur um fjórar vikur til 11. desember líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum.
„Tilboðið er háð skilyrðum um (i) að handhafar að lágmarki 75% atkvæðisréttar í Eik samþykki valfrjálsa tilboðið, (ii) að Samkeppniseftirlitið geri ekki athugasemd við viðskiptin eða setji viðskiptunum skilyrði sem Reginn sættir sig ekki við og (iii) að hluthafafundur Regins samþykki að veita stjórn heimild til þess að hækka hlutafé félagsins til þess að efna uppgjör á valfrjálsa tilboðinu. Með samþykki á hluthafafundi Regins þann 12. október síðastliðinn hefur síðastnefnda skilyrðið verið uppfyllt,“ segir í uppgjöri félagsins.