Stjórn Regins hefur ákveðið leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar. Verði tilboðið samþykkt verður markaðsvirði félagsins 77 milljarðar, sem þýðir að það verður eitt stærsta félag Kauphallarinnar. Gangi þessar áætlanir eftir mun félagið „sækja fram undir nýju nafni“.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var Kauphöllinni rétt eftir miðnætti. Með valfrjálsu tilboði er átt við tilboð sem beint er til allra hluthafa viðkomandi félags án þess að um tilboðsskyldu sé að ræða.
Í aðdraganda tilkynningarinnar nálgaðist Reginn stóra hluthafa í Eik með markaðsþreifingum og lýsti mögulegum viðskiptum og framtíðarsýn fyrir sameinað félag. Í kjölfarið hafa hluthafar, sem fara með meirihluta hlutafjár Eikar, lýst yfir jákvæðum viðbrögðum gagnvart áformunum.
Tilboðið verður að fullu fjármagnað með útgáfu nýs hlutafjár í Regin að fenginni heimild hluthafafundar. Hluthafar Eikar munu fá 46% útgefins hlutafjár í Regin. Skiptihlutfallið endurspeglar markaðsvirði hvors félags miðað við síðasta viðskiptaverð hluta félaganna í gær, 7. Júní. Markaðsvirði Eikar var þá 35,5 milljarðar króna en Regins 41,6 milljarður.
Tilboðið mun taka til allra hluta í Eik sem ekki eru þegar í eigu Eikar. Fyrir á Reginn enga hluti í Eik.
Árlegð samlegð allt að 500 milljónir
„Með viðskiptunum verður til stærsta skráða fasteignafélag landsins með getu til að leiða uppbyggingu sjálfbærra kjarna og sérhæfingu á sviði útleigu og fasteignarekstrar til að mæta auknum kröfum viðskiptavina,“ segir í tilkynningunni til Kauphallarinnar. „Reginn áætlar að árleg samlegð geti numið 300-500 milljónum króna þegar frá líður.
Markaðsvirði Eikar og Regins er af sambærilegri stærðargráðu og hluthafar beggja félaga njóta góðs af væntum ávinningi viðskiptanna. Þá er horft til þess að félagið verði áhugaverðari fjárfestingarkostur.“
Ákveðnar eignir seldar og aðrar þróaðar áfram
Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að fasteignasafn Eikar verði straumlínulagað með hliðsjón af stefnumörkun Regins um uppbyggingu á sterkum kjörnum og sjálfbærni.
„Það felur meðal annars í sér að ákveðnar eignir verða seldar auk þess að þær eignir sem teljast til þróunareigna verða þróaðar í samstarfi við sérhæfðan aðila með það að markmiði að hámarka verðmæti fyrir hluthafa.
Reginn hefur byggt upp skilgreindan farveg fyrir þróunareignir í samstarfi við Klasa sem er eitt reynslumesta fasteignaþróunarfélag landsins. Gert er ráð fyrir að um þriðjungur af stærð eignasafns Eikar falli undir ofangreinda straumlínulögun sem ráðgert er að geti tekið allt að 36 mánuði.“
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins:
Við sjáum fyrir okkur nýja sókn þessara tveggja félaga undir nýju nafni og merki. Uppbygging höfuðborgarsvæðisins er þjóðhagsleg áskorun sem krefst sterkra bakhjarla. Íbúafjöldi höfuðborgarsvæðis hefur aukist um 45 þúsund frá árinu 2012 og samkvæmt spám mun þeim fjölga um 40 þúsund til ársins 2040. Það þýðir verulega aukna verslun, fjölgun skrifstofa og þörf fyrir margs konar annað atvinnuhúsnæði.
Þá kallar breytt aldurssamsetning þjóðarinnar á fasteignafélag með mikið bolmagn, til dæmis til að byggja upp þjónustuhúsnæði fyrir eldri aldurshópa. Við höfum lagt áherslu á opinbera aðila og skráð fyrirtæki sem viðskiptavini og stefnum á að yfir 40% tekna félagsins komi frá þessum aðilum.
Félagið verður á meðal stærstu félaga í kauphöllinni og álitlegur fjárfestingarkostur fyrir þá sem vilja taka stöðu með íslensku efnahagslífi og fjárfesta í félagi með blöndu af verðtryggðu og veltutengdu fjárflæði.
Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður Regins:
Við teljum að hluthafar félaganna muni njóta góðs af því að eiga hlut í stærra félagi sem njóti betri fjármögnunarkjara og þar sem meira flot er á bréfum. Fasteignasöfn félaganna falla vel saman, að því leyti að bæði félögin eiga eignir á sömu kjarnasvæðum, eins og í Smáranum, miðborg Reykjavíkur og í Borgartúni.
Þetta verður sterkt félag með eftirsóttar lykileignir, litla endurfjármögnunarþörf næstu tvö árin og gott orðspor á sviði sjálfbærni. Útkoman er stærra félag með skýra stefnu sem getur boðið viðskiptavinum betri lausnir með aukinni arðsemi og félag sem höfðar til fjölbreyttari hóps fjárfesta.“
Reginn fylgir skýrri stefnumörkun um uppbyggingu fasteignasafns á sterkum kjörnum og sjálfbærni. Sérstök áhersla er lögð á útleigu stórra eininga til opinberra aðila og skráðra fyrirtækja. Langtímamarkmið félagsins verður að yfir 40% leigutekna komi frá opinberum aðilum og skráðum félögum. Virði eigna undir grænum fjárhagsramma Regins gæti ríflega tvöfaldast á næstu fimm árum í kjölfar viðskiptanna.
Nánari upplýsingar um tilboðið, þar með talið skilmála þess og skilyrði, munu koma fram í tilboðsyfirliti samkvæmt XI. kafla laga um yfirtökur sem verður birt á næstu vikum að fengnu samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilboðsyfirlitið verður sent til allra hluthafa sem skráðir eru í hlutaskrá Eikar á þeim tíma sem það er lagt fram. Tilboðið mun ekki ná til þeirra hluthafa sem skráðir eru í hlutaskrá eftir lok þess viðskiptadags þegar það er lagt fram. Tilboðið verður meðal annars háð skilyrðum um að samþykki fáist frá viðeigandi yfirvöldum, svo sem Samkeppniseftirlitinu, og að handhafar að lágmarki 67% atkvæðaréttar Eikar samþykki tilboðið.
Stjórn Regins hyggst á næstu dögum boða til hluthafafundar í félaginu. Á fundinum, sem mun fara fram á næstu vikum, verður meðal annars kosið um tillögu um að veita stjórn heimild til útgáfu nýs hlutafjár í Regin til þess að standa við uppgjör á tilboðinu.