Í síðustu viku kynnti HMS fasteignamat fyrir árið 2026 og er það 9,2% hærra en núgildandi fasteignamat. Meðalhækkun fasteignamats íbúða nemur 10,2%, á meðan fasteignamat sumarhúsa hækkar um 11,5% og fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8%. Mikil eftirspurn var á íbúðamarkaði í nágrannasveitarfélögum Grindavíkur á síðasta ári og hefur fasteignamat á Suðurnesjum því hækkað umfram landsmeðaltal. Fasteignamat hækkar líka umfram landsmeðaltal á Norðurlandi, en þar hefur virði atvinnu- og sumarhúsaeigna hækkað töluvert.
Beðinn um að líta í baksýnisspegilinn kveðst Kári S Friðriksson, hagfræðingur í greiningardeild Arion banka, hafa reiknað með því fyrir ári síðan að hækkun fasteignamats fyrir árið 2026 yrði minni en raun ber vitni.
„Vextir eru búnir að vera háir lengi og raunstýrivextir verið í kringum 4% í rúmt ár, sem er ansi hátt raunvaxtastig. Ég bjóst við að þetta myndi hafa meiri áhrif á fasteignamarkaðinn. Það kom aftur á móti tímabundinn kippur í fasteignaverði í fyrrasumar vegna Grindavíkuráhrifanna sem teygði sig svo aðeins inn í haustið. Maður sá fram á mjög litlar verðhækkanir eða jafnvel lækkanir frá þeim tímapunkti og inn í vorið en krafturinn í markaðnum hefur komið á óvart.“
Hann reiknar með að hækkun fasteignamats fyrir árið 2027 verði minni en fyrir árið 2026. „Við erum að reikna með u.þ.b. 6% hækkun fyrir árið 2027. Það eru þó ákveðin óvissuatriði, þá sérstaklega með allar þessu óseldu nýju íbúðir sem þurfa að lokum að vera seldar.“
Þá liggi fyrir frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um skammtímaleigu, sem er m.a. ætlað að draga úr útleigu til ferðamanna í gegnum Airbnb. „Ég á svo sem ekki von á að þessi lagabreyting muni hafa mikil áhrif en þó er ekki útilokað að töluverður fjöldi íbúða í miðbæ Reykjavíkur verði settur á sölu,“ segir Kári.
Hann bendir þó að lokum á að íslenski fasteignamarkaðurinn hafi í gegnum tíðina verið nokkuð ólíkindatól og verðhækkanir oft reynst umfram spár þegar upp er staðið.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.