Félagið East Side ehf, sem heldur utan um rekstur veitingastaðarins Duck & Rose, hefur verið auglýst til sölu en samkvæmt auglýsingu er verið er að leitast eftir um 150 milljónum króna fyrir félagið.
Velta veitingastaðarins hefur aukist töluvert ár frá ári en hún nam 275 milljónum árið 2022 og fór í 330 milljónir árið 2023.
Ársreikningur fyrir árið 2024 hefur ekki verið birtur en samkvæmt auglýsingu til áhugasamra aðila velti félagið 375 milljónum króna í fyrra.
Samkvæmt rekstrarreikningi fyrir árið 2023 tapaði veitingastaðurinn 14,7 milljónum það árið.
Eignir félagsins í árslok 2023 voru bókfærðar á 41,7 milljónir en eigið fé var neikvætt um 62,5 milljónir.
Í auglýsingu til fjárfesta er tekið fram að fyrirtækið sé með mjög hagstæðan leigusamning til margra ára en húsnæðið er ekki í eigu veitingastaðarins.
Samkvæmt síðasta ársreikningi er félagið með tímabundinn leigusamning sem skuldbindur félagið, miðað við verðlag í ársbyrjun 2022, til að greiða um 35,8 milljónir króna á ári. Samningurinn er bundinn við vísitölu neysluverðs og gildir til ársins 2030.
Félagið er í 70% eigu Þórðar Gíslasonar en Hulda Sif Þorsteinsdóttir og Erlendur Þór Gunnarsson eiga 20% hlut í gegnum félagið Blikaskirnir ehf.
Margrét Ríkharðsdóttir, yfirkokkur Duck and Rose , á jafnframt 5% hlut í félaginu líkt og Snorri Björgvin Magnússon, veitingastjóri veitingarstaðarins.