Nýtt vöruþróunarhús, Revera, hefur litið dagsins ljós í Borgartúni í Reykjavík en félagið var formlega stofnað í byrjun árs af hópi sérfræðinga með víðtæka reynslu í vöruþróun, sérhæfðri forritun og hönnun.

Undanfarin tvö ár segist teymið hafa mótað sýn á það hvernig gögn, hönnun og nýsköpun geta unnið saman að því að skapa raunverulegan árangur.

Revera vinnur að þróun eigin hugbúnaðarvara og starfar með stærri fyrirtækjum að stefnumótun, greiningum, ráðgjöf, hönnun og forritun til langs tíma. Sérstaða Revera liggur í áherslu á nýsköpun og nýtingu gagna.

„Gögnin eru lykill að vexti og við leggjum áherslu á að skilja þau í samhengi við viðskiptaleg markmið, hanna út frá innsýn gagnanna og smíða vörur sem skila árangri,“ segir Birgir Hrafn Birgisson, framkvæmdastjóri Revera.

Fyrirtækið starfar m.a. með Orku náttúrunnar, Íslandsstofu, Learncove og Optise. Þá er Revera einnig að þróa eigin vörur á borð við Hitels (hótelkerfi), Hirentals (bílaleigukerfi), Hibooking (bókunarkerfi).

„Við höfum í raun byggt upp teymi sérfræðinga sem skilja gögn og vöruþróun – en höfum að auki greiðan aðgang að sérfræðingum Digido, sem er systurfélag Revera.“

Fyrirtækið segist leggja áherslu á að þróa lausnir sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og vinnur nú að vöruþróun á stafræna lestrarleiknum Lesa, sem er í anda Duolingo og fékk nýverið styrk frá Tækniþróunarsjóði.